Fagráð um velferð dýra að ráðið hefur ákveðið að taka til skoðunar hvort hin svokallaða „veiða og sleppa aðferð“ í laxveiði samrýmist lögum um velferð dýra. Það er hvort réttlætanlegt sé að veiða dýr til skemmtunar en ekki til þess að nýta sér það.
Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri og fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum. En fagráðið tók upp málið eftir erindi frá honum.
„Sjálfur er ég stangveiðimaður og hef sleppt laxi eins og aðrir, en hef eins og fjölmargir aðrir veiðimenn þróað með mér miklar og vaxandi efasemdir um ofangreinda veiðiaðferð. Erindinu er ekki beint gegn stangveiði sem slíkri heldur snýst það um þá spurningu hvort réttlætanlegt sé að veiða dýr einungis sér til skemmtunar, án þess að ætla sér að nýta það,“ segir Runólfur í erindinu sem sent var þann 27. október síðastliðinn.
Þá háttur að veiða og sleppa laxi hefur vaxið mjög hratt á undanförnum þremur áratugum. Samkvæmt skýrslu Hafrannsóknarstofnunar var hlutfall slepptra laxa 2,3 prósent en árið 2025 var það komið upp í 65,8 prósent.
„Þessi breyting á veiðiháttum hefur orðið án þess að nokkurn tíma hafi verið metið opinberlega hvort hún samrýmist lögum um velferð dýra,“ segir Runólfur.
Mikil afföll
Bendir hann á velferðarsjónarmið í þessu samhengi. Hafrannsóknarstofnun hafi ekki mælt hversu margir slepptir laxar hafi drepist en það hafi Norðmenn gert, og er hlutfallið þar í landi 3 til 11 prósent. Í alþjóðlegri samantekt var hlutfallið 7 prósent.
Í hinum norsku rannsóknum kom einnig fram að um 3 til 10 prósent veiddra laxa hafi verið í svo slæmu ásigkomulagi að þeir hafi verið aflífaðir í staðinn fyrir að vera sleppt aftur. Heildar afföll af veiða og sleppa aðferðinni sé því á bilinu 10 til 17 prósent.
„Víða í íslenskum ám er kvöð um að sleppa öllum laxi, og margir veiðimenn sleppa jafnvel alvarlega særðum fiski „til að láta laxinn njóta vafans“. Með því er dauðvona laxi sleppt í árnar, og það eykur dánartíðni slepptra laxa verulega,“ segir Runólfur.
Haldið fyrir myndatöku
Áætlar hann því að um 1900 til 3300 af þeim 19.386 löxum sem voru veiddir árið 2025 hafi drepist. Vatnshiti í íslenskum ám fer hækkandi sem eykur hættuna enn frekar.
Sjá einnig:
Runólfur um þá sem veiða og sleppa laxi – Síðmiðaldra karlar sem meiði fiska til að taka trophymyndir á Instagram
„Þessir fiskar nýtast engum og eru ekki aflífaðir á skjótan og sársaukalausan hátt,“ segir hann. „Allir laxar sem sleppt er verða auk þess fyrir öngli, langri viðureign og meðhöndlun, og oft er haldið á þeim upp úr vatni til myndatöku.“
Að mati Runólfs eru veiðar réttlætanlegar þegar dýrið er nýtt til matar eða annarra þarfa og að veiðunum sé staðið af hófsemi og virðingu. En þegar veitt og sleppt er sé verið að valda fiskinum sársauka og streitu án þess að hann sé nýttur.
Aðrar aðferðir til
Helstu rökin fyrir því að sleppa laxi séu til að vernda stofnana. Slepptur lax geti hrygnt. En Runólfur segist ekki vita af neinum rannsóknum sem sýni fram á að aðferðin auki veiði til lengri tíma og skoðanir vísindamanna um gagnsemi aðferðarinnar eru skiptar.
„Sé markmiðið að vernda stofnana eru aðrar leiðir færar sem valda fiskunum engum þjáningum, til dæmis kvóti á hverja stöng, styttri veiðitími eða lokun áa. Í Noregi er ám lokað þegar stofnar eru ekki sjálfbærir eða vatnsskortur er alvarlegur,“ segir hann.