Íslensk heimili eru hvött til að eiga nægar birgðir af mat, vatni og öðrum nauðsynjum til að geta komist af í að minnsta kosti þrjá daga án aðstoðar. Þá er landsmönnum ráðlagt að geyma reiðufé heima, eiga rafhlöðuknúið útvarp og búa sig undir að rafmagn, fjarskipti og greiðslukerfi geti legið niðri um tíma.
Þetta kemur fram í nýjum upplýsingabæklingi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Verum viðbúin, sem gefinn er út í dag. Markmið hans er að efla viðbúnað almennings gagnvart óvæntum atburðum sem geta raskað daglegu lífi, svo sem náttúruhamförum, langvarandi rafmagnsleysi, fjarskiptatruflunum og öðrum alvarlegum áföllum.
Í bæklingnum er einnig vikið að breyttri öryggisstöðu í heiminum og þeim áhrifum sem stríðsátök og alþjóðleg spenna geta haft á íslenskt samfélag.
„Spenna í alþjóðasamskiptum og vopnuð átök í Evrópu og víðar geta haft áhrif hérlendis,“ segir í inngangi bæklingsins.
Þar er jafnframt bent á að nútímasamfélög séu viðkvæmari en áður, enda reiði þau sig í ríkum mæli á raforku, fjarskipti og innflutning nauðsynjavara. Verði alvarlegar truflanir á þessum kerfum geti aðgengi almennings að nauðsynjum takmarkast og álag á viðbragðsaðila aukist.
Hvetja fólk til að geyma reiðufé heima
Eitt þeirra atriða sem Almannavarnir leggja sérstaka áherslu á er að heimili hafi reiðufé tiltækt ef rafræn greiðslukerfi hætta að virka.
Bent er á að netárásir, kerfisbilanir, mannleg mistök eða rafmagnsleysi geti valdið truflunum á kortagreiðslum, snertilausum greiðslum og netbankaþjónustu.
„Mikilvægt er að eiga reiðufé heima,“ segir í bæklingnum.
Ekki er tilgreind ákveðin upphæð sem fólk ætti að geyma, heldur tekið fram að hún ráðist af fjölda heimilismanna og þeim nauðsynjum sem heimilið þurfi að geta keypt.
Þá er fólki ráðlagt að tryggja að það geti greitt fyrir vörur og þjónustu með fleiri en einum hætti.
Þetta ættu Íslendingar að eiga til
Almannavarnir leggja áherslu á að heimili geti séð fyrir grunnþörfum sínum í að minnsta kosti þrjá daga ef alvarlegt neyðarástand skapast.
Í bæklingnum er birtur ítarlegur gátlisti yfir nauðsynjar sem æskilegt er að hafa tiltækar. Þar má meðal annars finna:
- Neysluvatn og matvæli sem geymast lengi, svo sem dósamat og þurrmat.
- Nauðsynleg lyf, hreinlætisvörur og skyndihjálparbúnað.
- Reiðufé, greiðslukort og vegabréf.
- Vasaljós, rafhlöður og útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum.
- Hleðslubanka og hleðslutæki.
- Prímus eða gasgrill ásamt gaskút.
- Teppi, kerti, fjölnota verkfæri og viðgerðarlímband.
- Útprentaðan lista yfir mikilvæg símanúmer.
Einnig er fólki ráðlagt að huga sérstaklega að þörfum barna, aldraðra, einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma og gæludýra.
Almannavarnir benda á að ef rafmagnsleysi verður langvarandi geti það haft áhrif á húshitun, matargerð, fjarskipti og aðgengi að upplýsingum. Því sé mikilvægt að heimili hafi fyrir fram gert áætlun um hvernig bregðast eigi við slíkum aðstæðum.
Rás 2 verður upplýsingaveita í neyð
Í bæklingnum er sérstaklega minnt á mikilvægi þess að eiga útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum.
Ef rafmagn og fjarskipti liggja niðri getur reynst erfitt að nálgast upplýsingar í gegnum síma og internet. Við slíkar aðstæður gegnir útvarpið mikilvægu hlutverki.
Fram kemur að Rás 2 hjá Ríkisútvarpinu sé neyðarrás og að skilaboð stjórnvalda til almennings muni berast þaðan á neyðarstundu.
Fjölskyldur eru jafnframt hvattar til að ákveða fyrir fram samkomustað ef fjarskipti raskast og gera áætlun um hvernig hægt sé að ná sambandi við sína nánustu.
„Viðbúnaður er ekki einungis verkefni stjórnvalda“
Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir í tilkynningu til fjölmiðla að mikilvægt sé að almenningur taki virkan þátt í að efla öryggi samfélagsins.
„Viðbúnaður er ekki einungis verkefni stjórnvalda, heldur okkar allra. Þegar einstaklingar og fjölskyldur gera einfaldar ráðstafanir til að búa sig undir mögulegar truflanir eykst öryggi samfélagsins í heild.“
Hann segir markmiðið með útgáfu bæklingsins vera að auðvelda fólki að átta sig á því hvaða undirbúningur skiptir mestu máli og hvar hægt sé að nálgast áreiðanlegar upplýsingar þegar óvæntar aðstæður skapast.
Bæklingnum verður dreift rafrænt í gegnum Ísland.is og verður hann jafnframt aðgengilegur á vefnum verumvidbuin.is á íslensku, ensku og pólsku, auk þess sem boðið verður upp á útgáfur á auðlesnu máli og táknmáli.
Prentaðri útgáfu verður einnig dreift á völdum stöðum um land allt frá miðvikudegi til sunnudags með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar, samhliða sölu Neyðarkallsins.