Fréttir

Allt að 22 þúsund króna verðmunur á umfelgun – Hér er ódýrast og dýrast

Mynd
Mynd/Pexels

Mikill verðmunur er á umfelgun og dekkjaskiptum hjá íslenskum dekkjaverkstæðum. Allt að 22.475 krónum getur munað á því hvað bíleigendur greiða fyrir sömu þjónustu, samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands (ASÍ).

Í úttektinni voru bornar saman verðskrár 29 fyrirtækja á tíu stöðum víðs vegar um landið dagana 13. til 26. október. Alls voru rúmlega eitt þúsund verð skráð og leiðir samanburðurinn í ljós að bíleigendur geta sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að kynna sér verð áður en þeir bóka tíma á dekkjaverkstæði.

Munar rúmlega 22 þúsund krónum 

Mestur reyndist verðmunurinn þegar kemur að umfelgun fólksbíla á 22 tommu felgum. Þar var lægsta verðið 13.900 krónur hjá Pitstop á Selfossi en það hæsta 36.375 krónur hjá MAX1 Bílavaktinni. Munurinn nemur 22.475 krónum, eða tæplega 162 prósentum.

Fyrir algengari felgustærðir er verðmunurinn einnig töluverður. Umfelgun á 14–16 tommu felgum kostar minnst 10.990 krónur hjá Fastparts í Hafnarfirði en mest 16.990 krónur hjá N1. Þar munar því 6.000 krónum á ódýrasta og dýrasta kostinum.

Fyrir 17 tommu felgur er lægsta verðið 12.900 krónur hjá Bílaverkstæðinu No22 í Reykjavík en það hæsta 19.990 krónur hjá N1, Betridekk og Kletti.

ASÍ bendir á að fyrir heimili með tvo fólksbíla á 16 tommu felgum geti munurinn á hæsta og lægsta verði numið 12.000 krónum í hvert skipti sem skipt er um dekk á báðum bílunum. Sé farið í umfelgun tvisvar á ári getur verðmunurinn því orðið 24.000 krónur á ári.

 

 

 

Jeppaeigendur geta einnig sparað þúsundir

Verðmunurinn er ekki síður áberandi þegar kemur að jepplingum og jeppum.

Umfelgun jepplings eða óbreytts jeppa á 16 tommu felgum kostar minnst 10.990 krónur hjá Fastparts en mest 19.990 krónur hjá Betridekk. Þar munar 9.000 krónum, eða tæplega 82 prósentum.

Fyrir 20 tommu felgur er verðið á bilinu 15.490 til 31.760 krónur, sem þýðir að dýrasta þjónustan kostar meira en tvöfalt það sem sú ódýrasta kostar.

Þegar kemur að breyttum jeppum á 35 tommu dekkjum er verðmunurinn 9.500 krónur. Lægsta verðið er 20.490 krónur hjá MN Bílaverkstæði en það hæsta 29.990 krónur hjá N1 og Kletti.

Getur borgað sig að eiga tvo umganga

Í úttekt ASÍ kemur jafnframt fram að töluverður sparnaður getur falist í því að hafa sumar- og vetrardekk á aðskildum felgum.

Þegar eingöngu þarf að skipta um hjól, í stað þess að taka dekkin af felgunum og setja önnur á, er þjónustan víða nokkuð ódýrari.

Hjá BL Hraðþjónustu, MN Bílaverkstæði og N1 eru slík hjólaskipti á tilteknum felgustærðum 5.000 til 7.000 krónum ódýrari en hefðbundin umfelgun. Miðað við tvö skipti á ári getur sparnaðurinn numið 10.000 til 14.000 krónum á hvern bíl.

ASÍ tekur þó fram að við mat á hagkvæmni þurfi einnig að horfa til kostnaðar við kaup á aukafelgum, geymslu og viðhaldi.

 

 

Bíleigendur hvattir til að bera saman verð

Verðlagseftirlit ASÍ bendir á að ýmis aukagjöld og afslættir geti haft áhrif á endanlegt verð. Sum verkstæði rukka sérstaklega fyrir lágprófíldekk eða stærri bíla, á meðan önnur bjóða afslátt við kaup á nýjum dekkjum.

Þá er mikilvægt að kanna hvort jafnvægisstilling sé innifalin í uppgefnu verði. Í samanburði ASÍ á umfelgun er hún innifalin í öllum tilvikum, en það á ekki við um öll skráð verð fyrir hjólaskipti.

Neytendum er því ráðlagt að gefa upp rétta felgustærð og tegund bifreiðar þegar þeir bóka tíma og óska eftir staðfestingu á heildarverði.

ASÍ vekur einnig athygli á vefsíðunni dekkjaskiptin.is, þar sem bíleigendur geta borið saman verð á umfelgun og dekkjaskiptum.

Tekið er fram að úttektin byggist eingöngu á uppgefnum verðum fyrirtækjanna en ekki hafi verið lagt mat á gæði þjónustunnar.