Kona hefur verið ákærð fyrir að auglýsa að hún væri tilbúin til að stunda kynlíf gegn greiðslu en hún var þá staðsett á Akureyri. Konan virðist hins vegar vera farin úr landi.
Konunni er birt ákæra í Lögbirtingablaðinu. Hún er erlend og á fimmtugsaldri. Fram kemur að ekki sé vitað með vissu hvar konan sé niðurkomin en talið sennilegt að hún sé í Nígeríu.
Konan er ákærð fyrir fyrir að auglýsa opinberlega inni á alþjóðlegri vændissíðu, City of Love, að hún væri tilbúin til að stunda kynlíf gegn greiðslu. Samkvæmt ákærunni birti konan auglýsinguna seinnipartinn í september 2025 og var í framhaldinu af því handtekin á Akureyri 25. september sama ár, en í auglýsingunni hafi sérstaklega verið tekið fram að hún væri staðsett á Akureyri og tæki á móti viðskiptavinum þar.
Segir í ákærunni að þessi háttsemi varði við 7. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga en þar segir:
„Hver sem í opinberri auglýsingu býður fram, miðlar eða óskar eftir kynmökum við annan mann gegn greiðslu skal sæta sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.“
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Norðurlands Eystra þann 9. desember næstkomandi. Mæti konan ekki má búast við að það verði metið sem ígildi játningar og að dómur verði kveðinn upp, að henni fjarstaddri.