„Einn morguninn ekki fyrir svo löngu, þá segir Sigurvin við mig: „Veistu ástin mín ég er bara orðinn sáttur. Ég er bara orðinn sáttur að þetta er farið að styttast.“ Hann er líka orðinn svo þreyttur. Á sama tíma og það er ógeðslega sárt að heyra þetta, þá er það samt svona einhver gjöf.
Þegar sjúkrabíllinn sótti hann aðfararnótt mánudags, við búum í sömu blokk og ég bjó í með Baldvini nema bara í annarri íbúð, fann ég það þegar þeir báru hann út á sjúkrabörunum og horfði á þá keyra með blikkandi ljós í burtu, hvernig ég skaust svolítið til baka í tíma og niður á fyrstu hæð. Ég er alveg að endurupplifa fyrri reynslu og það er bara drulluerfitt,“
segir Kristín Snorradóttir sem fylgdi Baldvini Viggóssyni, eiginmanni sínum, í gegnum krabbamein í 26 ár. Hann lést 10. september 2021. Níu mánuðum síðar kynntist Kristín núverandi sambýlismanni sínum, Sigurvin Samúelssyni, og stendur nú í sömu sporum og áður, að fylgja ástinni sinni í gegnum ólæknandi krabbamein og vita að hann muni að öllum líkindum kveðja þessa jarðvist á undan henni.
Þetta er bútur úr lengra helgarviðtali við Kristínu sem má lesa hér:
Sigurvin er búinn að ákveða eigin útför
Kristín ber aðspurð saman fyrri reynslu við stöðuna í dag, að standa frammi fyrir því að styttist í ævilok makans. Hún segir Sigurvin vera að fara í gegnum erfiða tíma, það hafi komið tímabil þar sem hann gerði lítið annað en að gráta enda búinn að átta sig á að hann væri að fara að deyja.
„Einn morguninn segi ég við hann: Af hverju sestu ekki bara niður og skrifar niður hvernig þú vilt hafa jarðarförina? lætur mig svo hafa þetta bréf og ég geymi það á öruggum stað.
Sem hann gerði og hann er búinn að fara lengra með skipulagið, hann er búinn að tala við tónlistarfólkið sem hann vill hafa og fleira. Þetta var akkúrat það sem hann þurfti, bara að fá viðurkenningu á því að hann mætti setja þetta niður. Svo ræðum við mjög opinskátt um það að mjög líklega muni hann deyja á undan mér. Þegar öllu er á botninn hvolft þá deyjum við öll. Ég er löngu síðan búin að ákveða og segja börnunum mínum hvernig ég vil hafa mína jarðarför, ég gerði það eftir að Baldvin dó. Og ég held að þetta skipti gríðarlegu máli fyrir bæði aðstandandann og sjúklinginn.“
Kristín segir að staðan hafi verið þveröfug hjá Baldvin, þrátt fyrir að hafa barist lengi við krabbameinið var hann aldrei tilbúinn til þess að deyja og var ekki búinn að ákveða hvernig hann vildi að útförin yrði:
„Hann var aldrei á leiðinni að deyja. Alveg sama þó hann væri kominn upp á spítala og ekki á leið heim aftur. Baldvin var ekki búinn að ákveða neitt fyrir sína jarðarför, nema eitt ljóð sem hann samdi til mín, og hann bað mig um að láta útsetja það og láta syngja í jarðarförinni. Það var eina óskin sem hann skildi eftir, og við vorum alveg tóm með skipulagið og ég lét bara krakkana ráða hvernig jarðarförin yrði. Þetta var erfiðara ferli af því að hann var ekki búinn að setja neitt niður. Og þar af leiðandi var kveðjustundin ekki eins og Baldvin hefði viljað. Það er kannski ákveðin sátt ef maður er búinn að skipuleggja þetta sjálfur og líka bara sátt fyrir aðstandendur að þeir viti að svona vildi hinn látni hafa þetta.“
Nýtti endurhæfingu til að láta gamlan draum rætast og gefur út kortastokka
Kristín hefur sjálf ekki farið varhluta af því hvað álag síðustu ára hefur haft. Hún starfaði hjá Bjarmahlíð á Akureyri þegar hún fór í veikindafrí og síðan í níu mánaða endurhæfingu hjá Virk sem hún er núna að ljúka.
„Í þessari endurhæfingu fór ég að gefa mér tíma til þess að hanna kortastokkana sem ég er búin að ganga með í kollinum í mörg ár. Það er ekki neitt til á íslensku um flökkutaugaæfingar. Og þetta er fyrsti stokkurinn á íslensku. Vitund er djúpar markþjálfaraspurningar sem eru settar fram eins og í tarot. Leiðarljós eru lítil gullkorn sem ég hef safnað að mér í gegnum rúmlega 20 ára starf. Það er mikið til af fallegum kortum en oft eru þau með svo miklum texta. Og þegar þú ert með hausinn út um allt þá er miklu erfiðara að lesa þrjár línur heldur en eina.“
Tökum dæmi stokkinn um flökkutaugina, það fylgir leiðbeiningabæklingur með. Og þú dregur eitt spil og þar er ein æfing, sem dæmi um öndun og spilið útskýrir hvernig þessi öndunaræfing er gerð. Neðst stendur: Hvaða áhrif er þessi öndun að hafa á taugakerfið þitt? Þetta eru æfingar sem skiptast í fimm flokka. Þetta er öndun, þetta er sjónin af því sjóntaugin skiptir rosa miklu fyrir taugakerfið og svo framvegis. Þú getur gripið spil ef þú ert til dæmis bara mjög stressaður, þetta er tveggja mínútna upp í sjö mínútna æfingar. Þetta er mjög einfalt en ofboðslega áhrifaríkt. Þetta eru sömu æfingar og ég hef verið að nota á námskeiðunum mínum.“
Biðja þarf um aðstoð ekki gera ráð fyrir að fólk átti sig á hvaða aðstoð vantar
Kristín segir einnig mikilvægt að biðja upphátt um aðstoð. Ekki sé hægt að gera ráð fyrir að fólk lesi hugsanir og átti sig á hvaða aðstoð vanti:
„Þú þarft að teygja þig út, þú þarft að biðja um hjálp. Þú þarft að segja við fólk: „Viltu hjálpa mér? Akkúrat núna þá erum við pínu úrvinda eftir þetta hjartaáfall. Og góð vinkona mín sem var að hringja núna meðan við vorum að spjalla og ég svaraði að ég myndi hringja til baka á eftir var örugglega að hringja til þess að segja mér að hún sé að koma með eitthvað að borða handa okkur.“
Kristín segir slíka hjálp ómetanlega, að koma með tilbúinn mat sem hægt er að setja bara í ofninn. Og hún minnist þess að þegar Baldvin lá banaleguna hafi vinkona hennar sem er mikil skipulagskona gert grúbbu á Facebook með aðstandendum þeirra og vinum til að fólk gæti skipt með sér verkefnum, aðstoð og dögum í stað þess til dæmis að allir kæmu sem dæmi með mat einn daginn og engin aðstoð væri aðra daga.
„Svona hjálp er ómetanleg. Akkúrat fyrir ári síðan sagði Örvar krabbameinslæknir við okkur: „Ef þið ætlið að fara erlendis þá skuluð þið gera það núna. Það verður síðasta ferðin ykkar.“ Þá fór ég að selja kerti alveg eins og brjálæðingur og fólk keypti og keypti kerti en margir lögðu aðeins hærri upphæð eins og við gætum farið út í góða ferð. Það eru minningar sem skipta máli.“
Hefur lært að kyngja stoltinu og biðja um hjálp
Kristín segir að þrátt fyrir að hún hafi varið allri sinni starfsævi í að byggja upp fólk, og sé sjálf boðin og búin fyrir fólkið sitt eigi hún á sama tíma mjög erfitt með að biðja sjálf um hjálp:
„Ég er 57 ára. Ég er nýbúin að læra það. Það sem ég myndi eiginlega helst vilja segja við aðstandendur er: Þú settir súrefnisgrímuna á þig og þiggðu síðan aðstoð. Núna kann ég að þiggja hjálpina. Og núna kann ég að segja upphátt: „Við þurfum þessa hjálp núna.“ Stoltið mitt var að drepa mig undir lokin með Baldvin. Ég hef lært að kyngja svolítið stoltinu. Stolt er líka streituvaldandi. Það býr bara til verki í líkamann og vöðvabólgu og magaverki og alls konar.“
Hún segir að ekki megi gleyma því að fólkið í kringum okkur vill leggja hönd á plóginn í erfiðum aðstæðum, það þurfi hins vegar að vita hvaða aðstoð vanti og hvenær:
„Fólkið í kringum okkur sem þykir vænt um okkur, því þykir gott að fá að leggja eitthvað til. Og við eigum að vera þakklát fyrir það í staðinn fyrir að drepast úr einhverju stolti að geta gert allt sjálf. Fólki þykir vænt um Sigurvin og vill bjóða fram aðstoð. Ég þekki þetta líka sjálf, ég er þessi kærleiksbjörn, ég vil alltaf vera að gera eitthvað fyrir góð málefni.
Á sama tíma og þetta er alveg ógeðslega erfitt að þá sé ég samt líka gjafirnar sem eru í þessu verkefni okkar Sigurvins eftir að hafa unnið með sjálfa mig síðustu 20-30 ár, orðin eldri, þroskaðri og örlítið vitrari.
Þannig að það er stærsti lærdómurinn sem ég hef fengið út úr þessum verkefnum mínum og áföllum: að muna það að ég er bara mennsk og ég má bogna líka. Og þá þarf ég að hafa þroska til þess að taka sjálf við þeirri aðstoð sem mér og Sigurvin er boðin.“