Fréttir

Stuttmynd um skrímslin sem hræða börn vekur gríðarlega athygli - „Börn eiga að vera hrædd við myrkrið, þannig á það að vera, ekki við daginn“

Mynd

Gervigreindin er nýtt til hins ítrasta með áhrifamiklum hætti í þriggja mínútna myndbandi þar sem rætt er við þrjú skrímsli í lífi bara. 

Pip, 36 ára, skrímsli bak við gluggatjöld Milu, Morris, 43 ára, skrímsli í skáp Mliu, og Gus, 31 árs, skrímsli undir rúmi Milu, eru til viðtals og lýsa þau því hvaða aðferðir þau nota til að hræða börn.

„Undanfarið hefur eitthvað breyst,“ segir Gus. „Þetta er mjög skrýtið, Mila bara liggur þarna, hún horfir ekki á gluggatjöldin. Hún er ekki hrædd við okkur lengur,“ segir Pip.

Ákveða þau að rannsaka hvað veldur og fara út í dagsljósið sem þau segja hræðilegt.

„Börn eiga að vera hrædd við myrkrið, þannig á það að vera, ekki við daginn,“ segir Gus.

Skrímslin átta sig á að það er allt annað og skelfilegra sem hræðir Milu en þau gera.

Sjáðu hvað hræðir Milu og jafnvel skrímslin þrjú í myndbandinu hér fyrir neðan:

 

Samkvæmt samantekt UNICEF um ofbeldi gegn börnum á heimilum, sem gefin var út í nóvember 2025, bjó eitt af hverjum fjórum börnum á heimsvísu, um 610 milljónir barna, hjá mæðrum sem höfðu orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka árið á undan. Í skýrslunni kemur einnig fram að börn geta skaðast af því að verða vitni að ofbeldi milli þeirra sem annast þau, jafnvel þótt þau verði ekki sjálf fyrir beinu ofbeldi. 

Myndin hefur farið á flug á samfélagsmiðlum og boðskapur hennar snert við notendum samfélagsmiðla; sumir segja að lýsingin á ótta barna hafi fengið þá til að gráta.

Stuttmyndin MONSTERS er gerð af gervigreindarkvikmyndagerðarmanninum Simon Meyer og PROMPTR í samstarfi við NO MORE, alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að binda enda á heimilisofbeldi og kynferðislegt ofbeldi. Myndin var gerð með Kling AI 4.0, og tæknin hjálpaði til við að vekja ímyndaðar persónur og söguþráð til lífsins. Með óvenjulegri túlkun á skrímslum frá barnæsku hefur stuttmyndin vakið áhorfendur til að íhuga alvarlegan veruleika: fyrir sum börn er það sem þau óttast mest ekki falið undir rúmum þeirra heldur að gerast inni á heimilum þeirra. 

Úrræði við ofbeldi í nánu sambandi

Neyðarlínan er með ítarlegar leiðbeiningar bæði um það hvað ofbeldi í nánu sambandi felur í sér og hvert er hægt að leita ef maður sjálfur eða einhver sem maður þekkir er beittur ofbeldi.

Í þessari frétt er fjallað um ofbeldi í nánu sambandi. Verðir þú fyrir ofbeldi í nánu sambandi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Þá má nálgast leiðarvísi fyrir þolendur slíks ofbeldis á vef Neyðarlínunnar.