Fréttir

Ráðgátan mikla í Kópavogi - Grímuklæddur maður kúkaði á bíl Ragnars á hrekkjavökunni

Mynd
Atvikið átti sér stað um klukkan 5:30 á laugardagsmorgun. Skjáskot/Youtube

Huldumaður skeit á bíl Ragnars Egilssonar, íbúa við Álfhólsveg í Kópavogi á hrekkjavökunni. Hefur þetta gerst í nokkur skipti á undanförnum árum og er mikil ráðgáta hver sé á ferð.

Í myndbandi sem Ragnar deildi á Youtube og Facebook má sjá upptöku úr öryggismyndavélakerfi hans. Um klukkan 5:30 aðfaranótt hrekkjavöku, þann 31. október, mætir grímuklæddur maður inn á lóðina hjá honum.

Hann lítur í kringum sig, girðir svo niður um sig brækurnar og virðist hafa hægðir vinstra megin á framhlið bíls Ragnars. Eða að minnsta kosti gera tilraun til þess.

Sjá einnig:

Grímuklæddur maður í skikkju gekk örna sinna á bíl Ragnars - Telur málið tengjast hatrömmum nágrannaerjum

DV hefur áður greint frá sams konar málum. En Ragnar vaktar bíl sinn og lóð vel með öryggismyndavélakerfi. Sjálfur er hann fatlaður, með MS sjúkdóm og í hjólastól.

Djákninn á Myrká

Fyrsta tilfellið sem upp kom var í febrúar árið 2023. Þá birtist vera sem líktist einna helst Djáknanum á Myrká sem hafði saurlát á bíl Ragnars.

Sagðist Ragnar sannfærður um að atvikið tengdist hatrömmum nágrannaerjum, sem tengdust framkvæmdum í þvottahúsinu á heimili hans. Mál sem hafði farið fyrir dómstóla. Snúast erjurnar um fjárkröfur Ragnars á hendur húsfélagi vegna skemmda á íbúð hans. Ófaglærður pípulagningamaður sem aðrir íbúar hafi kallað til hafi tekið að sér að skipta um klóaklagnir en lagt íbúðina í rúst að hans sögn.

Taldi Ragnar hins vegar ekki að myrkraveran væri nágranninn sem hann stæði í erjum við.

„Ef þetta eru einhver skilaboð þá er ég bara of heimskur til að skilja þau. Ég þarf betri skilaboð,“ sagði Ragnar á sínum tíma.

Jólasveinn

Aftur var komið í desember á sama ári. Þá var maðurinn klæddur sem jólasveinn og gerði það sama og áður, hafði saurlát á bíl Ragnars. Ragnar tók eftir að um sama mann væri að ræða þar sem hann var í sömu skóm og áður.

Sjá einnig:

Aftur skitið á bíl Ragnars – „Jólasveinn kom til mín í gær“

„Jólasveinn kom til mín í gær, Vildi fá að nota klósettið hjá mér. Gat ekki leyft honum það,“ segir Ragnar Þór í færslu með myndbandi af atvikinu á Youtube.

Með hauskúpugrímu

En þrátt fyrir að Ragnar auglýsti þetta vel á samfélagsmiðlum og að DV hafi fjallað um málið fældi það huldumanninn ekki frá.

Árið 2024 kom það upp í tvígang að maðurinn kom um miðja nótt og kúkaði á bílinn. Í október það ár kom hann til að mynda með hauskúpugrímu í anda hrekkjavökunnar og lét gossa.