Fréttir

Muhammed tjáir sig um fordómana gegn múslimum - „Síðan hvenær á heilt trúarsamfélag að þurfa að svara fyrir ákvarðanir fárra einstaklinga?“

Mynd
Muhammed Emin Kizilkaya Mynd/Ernir

Muhammed Emin Kizilkaya doktorsnemi við Háskóla Íslands hefur búið á Íslandi í um áratug. Hann er frá Danmörku en af kúrdískum ættum og múslimi. Muhammed hefur vakið nokkra athygli fyrir mikinn áhuga sinn á íslensku óveðri og fengið viðurnefnið Muhammed stormeltir. Minna hefur farið fyrir honum undanfarið en í einlægri Facebook-færslu sem hann veitti DV góðfúslegt leyfi til að fjalla um og hefur vakið mikla athygli tjáir Muhammed sig um umræðuna í garð múlisma undanfarið. Hann furðar sig á því að heill trúarhópur sé gerður ábyrgur fyrir orðum og hegðun tiltekinna einstaklinga og bendir á að harðneskjuleg umræða fái oft meiri athygli en samvinna og samhugur fólks sem tilheyri ólíkum trúarhópum.

Muhammed hefur færslu sína á þessum orðum:

„Fyrir nokkrum kvöldum sátum við hjónin hvort á móti öðru í stofunni og lásum enn eina hrinuna af fréttum og athugasemdum á Facebook um íslam og múslima á Íslandi. Á einum tímapunkti leit konan mín á mig og spurði: „Af hverju halda þau þessu áfram? Af hverju hætta þau ekki?“ Og satt að segja vissi ég ekki alveg hverju ég átti að svara.“

Ábyrgð

Muhammed segist hafa orðið að leggja orð í belg vegna umræðu síðustu daga og vísar þar til viðbragða við heimsókn hins afar íhaldssama fræðimanns, fyrirlesara og fyrrum dómara Muhammad Taqi Usmani, frá Pakistan:

„Ég skil vel að umdeildar skoðanir og ákvarðanir veki spurningar. Og það er eðlilegt. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem umdeildir einstaklingar úr trúar- eða stjórnmálalífinu koma hingað til lands og halda erindi, og verður varla það síðasta. Það á að mega gagnrýna skoðanir þeirra, spyrja hvers vegna þeim er gefinn vettvangur og láta fólk bera ábyrgð á sínum eigin ákvörðunum. En síðan hvenær á heilt trúarsamfélag að þurfa að svara fyrir ákvarðanir fárra einstaklinga?“

Muhammed er ekki sáttur við hvernig umræðan þróast iðulega þegar múslima ber á góma:

„Það sem fer mest í taugarnar á mér er hvernig umræðan virðist sífellt fara í hringi. Fyrst birtist frétt. Svo fer fólk að rífast um hana á Facebook og áður en maður veit af eru rifrildin sjálf orðin að nýrri frétt. Þá byrjar þetta allt aftur. Fleiri fyrirsagnir, fleiri reiðileg ummæli og fleiri alhæfingar. Og áður en langt um líður snýst umræðan ekki lengur um það sem raunverulega gerðist, heldur um múslima almennt. Á meðan þetta gengur allt á hugsa ég oft um aðra hlið á Íslandi sem fær sjaldan pláss í þessari umræðu.“

Með kristnum

Segir Muhammed síðan frá ýmsum samkomum og boðum sem hann, eiginkona hans og fleiri múslimar á Íslandi hafa tekið þátt í ásamt innfæddum kristnum Íslendingum, til að mynda prestum.

Þetta fólk hitti hann ekki bara á skipilögðum viðburðum. 

Nefnir Muhammed til dæmis til sögunnar prest Fríkirkjunnar í Reykjavík Hjört Magna Jóhannesson og Eggert Gunnarsson sem séð hefur um ýmsar upptökur fyrir kirkjuna:

„Hafa árlega boðið mér og fjölskyldu minni í kirkjuna til að taka þátt í jóla- og páskakveðjum sem eru sýndar á RÚV. Þar komum við sjálf fram, óskum landsmönnum gleðilegrar hátíðar og biðjum fyrir Íslandi. Við höfum alltaf tekið þátt með glöðu geði. Þegar ég les svo ummæli sem gefa í skyn að múslimar og kristnir geti ekki lifað hlið við hlið, hugsa ég ósjálfrátt um öll kvöldin sem við höfum setið saman við sama borð.“

Muhammed segir að mikið af vináttu múslima og kristinna á Íslandi hafi orðið til í gegnum samtökin Horizon sem múslimar hér á landi hafi sett á fótt:

„Á hverjum jólum förum við með litlar gjafir á sjúkrahús, lögreglustöðvar og slökkvistöðvar til þeirra sem eru á vakt á meðan aðrir eru heima með fjölskyldum sínum. Þetta er einfaldlega okkar litla leið til að þakka fólkinu sem er að gæta okkar hinna.“

Í gegnum Horizon hafi einnig verið stofnað til stærðfræðikeppninnar Pangea: 

„Síðan þá hefur orðið til frábært og öflugt lið í kringum verkefnið, meðal annars stærðfræðinemar við Háskóla Íslands, íslenskir sjálfboðaliðar, kennarar og margir aðrir sem hafa hjálpað til við að byggja það upp. Í dag er Pangea stærsta keppni sinnar tegundar á Íslandi. Á þessu ári tóku 4.694 nemendur úr 62 skólum þátt. Samkvæmt okkar útreikningum jafngildir það rúmlega 40% allra nemenda í 8. og 9. bekk á landinu. Ég er virkilega stoltur af því sem við höfum byggt upp saman og þakklátur öllum sem hafa komið að því. En stundum sit ég og velti fyrir mér: Hversu margir þekkja eiginlega þessar sögur?“

Athygli

Muhammed segist í langan tíma hafa reynt að vekja athygli íslenskra fjölmiðla á verkefnum eins og þessum en það hafi oft á tíðum gengið erfiðlega:

„Þegar eitthvað umdeilt kemur upp sem tengist múslimum virðist aftur á móti aldrei skorta fréttir, viðtöl og framhaldsumfjöllun. Auðvitað eiga fjölmiðlar að fjalla um erfið og óþægileg mál. En eru ekki líka aðrar sögur sem eiga skilið að heyrast? Því hvaða mynd erum við eiginlega að draga upp þegar fólk heyrir stöðugt um allt það sem fer úrskeiðis, en svo lítið um allt það sem fólk er að gera saman?“

„Það eru múslimar sem hafa búið hér á landi árum saman, jafnvel áratugum. Fólk sem hefur alið hér upp börn, unnið og lagt sitt af mörkum til íslensks samfélags, en raddir þess heyrast varla í þessari umræðu. Sumir eiga erfitt með að tjá sig á íslensku. Aðrir eru hræddir við að tjá sig opinberlega.“

Morðhótanir

Muhammed segist hafa fengið morðhótanir en treysti sér til að segja sína skoðun og þrátt fyrir allt hafi hann aldrei viljað hætta að tala við fólk sem sé ósammála sér:

„Ég hef rætt við fólk með alls konar stjórnmálaskoðanir, líka fólk langt til hægri í stjórnmálum og fólk sem er mjög andsnúið íslam. Ekki vegna þess að ég sé sammála því, heldur vegna þess að mig hefur í alvöru langað að skilja hvaðan áhyggjur þess og ótti koma. Ég man til dæmis eftir því þegar ég fór eitt sinn niður á Austurvöll til að fylgjast með mótmælum um innflytjendamál. Mótmælin höfðu verið auglýst víða og mig langaði að heyra hvað fólk hefði að segja, líka þeir sem höfðu mjög neikvæðar skoðanir á íslam. Ég var ekki þarna til að taka þátt eða rífast við neinn. Mig langaði einfaldlega að skilja. En þá gerðist nokkuð sem ég man enn mjög vel eftir. Kona sem tók þátt í mótmælunum þekkti mig frá samtölum sem við höfðum átt áður. Hún kom til mín og faðmaði mig. Þarna stóð ég, múslimi, á mótmælum þar sem sumir lýstu mikilli andstöðu við trúna mína, og við heilsuðumst eins og gamlir vinir.“

Muhammed segist reyna að skilja áhyggjur og ótta fólks, líka þegar hann sé því alls ekki sammála. En að reyna að skilja ótta annarra þýði ekki að maður eigi að sætta sig við hatur.

Muhammed segist stunda hafa fengið að heyra frá þeim sem þekki engan múslima nema hann að hann sé ólíkur öðrum múslimum:

„Þess vegna er ég að deila þessum myndum. Því þetta er líka Ísland. Þessi vinátta og þessar stundir hafa verið hluti af lífi okkar árum saman, löngu áður en fréttirnar og deilurnar síðustu daga hófust. Og það eru ótal fleiri svona sögur til. Sögur af fólki sem við heyrum kannski aldrei nefnt og sjáum aldrei í fréttunum. Ég vildi bara óska þess að við gæfum þeim líka aðeins meira pláss. Því kannski er fólkið sem við köllum undantekningar einfaldlega það fólk sem við höfum gefið okkur tíma til að kynnast.“