Maður hefur játað að hafa sparkað í lögreglumann og hótað honum og kollega hans en báðir lögreglumennirnir virðast vera kvenkyns. Átti þetta sér stað þegar maðurinn var handtekinn á setustofu Hótel Stracta á Hellu og hélt maðurinn síðan hegðun sinni áfram á leið á lögreglustöðina á Selfossi og þegar þangað var komið. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands yfir manninum er vitnað til ýmissa grófra ummæla og hótana sem hann lét falla í garð lögreglukvennanna en hann hótaði annari þeirra meðal annars kynferðislegu ofbeldi.
Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa sunnudaginn 9. nóvember 2025 á setustofu Hótel Stracta á Hellu sparkað í aðra lögreglukonuna við handtöku og hótað
þeim báðum líkamsmeiðingum með orðunum:
„Ég fokking tek þig og fokking rústa þér litla rottan þín.“
„Ég fokking stúta þér þarna litla tussan þín.“
„Ég skal fokking rústa ykkur báðum.“
Samkvæmt ákærunni hótaði maðurinn síðan hinni lögreglukonunni, í lögreglubifreið á leið á lögreglustöðina með eftirfarandi orðum:
„Á ég að fokking buffa þig“.
Hann hótaði henni síðan líkamsmeiðingum fyrir utan lögreglustöðina á Selfossi með orðunum:
„Komdu út haltu kjafti litla hóran þín eða ég fokking snappa þig“
Éta
Einna grófustu ummælin lét maðurinn síðan falla á lögreglustöðinni á Selfossi þegar hann hótaði lögreglukonunni sem hann sparkaði í bæði líkamsmeiðingum og
kynferðislegu ofbeldi með orðunum:
„Bíddu, bíddu þangað til ég fæ tækifæri litla hóran þín, ég tek það og ét þig, fokking ét þig litla hóran þín“.
„Hættu að taka í mig eins og þú sért eitthvað þarna litla hóran þín á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín, ha viltu það, viltu það á ég að ríða þér í rassgatið litla hóran þín“.
„Komdu litla tussan þín ég skal fokking skalla þig í smettið“.
Fyrir dómi játaði maðurinn skýlaust að hafa gerst sekur um þessa háttsemi. Í ljósi þess og hann hafði ekki gerst áður sekur um refsiverða háttsemi þótti Héraðsdómi Suðurlands við hæfi að dæma hann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.