Fréttir

Íris Helga viðurkennir að hafa logið til um nauðgun - „Hann veit ekkert hver ég er“

Mynd
Íris Helga Jónatansdóttir. Mynd: Skjáskot YouTube.

Íris Helga Jónatansdóttir, sem ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, viðurkenndi fyrir dómi í dag að hafa ranglega sakað einn þolanda málsins um nauðgun.

Þetta gerði hún með því að biðja um tíma hjá kærumóttöku lögreglu þar sem hún fyllti út skjal þar sem hún sakaði viðkomandi um grófa nauðgun og skilaði því svo inn.

Gekkst Íris við þessu þegar sækjandi bar þennan ákærulið undir hana en tók fram að hún hefði strax dregið þetta til baka með því að senda tölvupóst á lögreglu. Hún hefði gert þetta í reiði þar sem hún teldi þolanda vera að „mannorðsmyrða“ sig.

Lét Íris eins og það væri þó galið af lögreglu að láta eins og þetta væri stórmál. Hún hafi gert mistök og beðist afsökunar. 

Framburður á reiki

Benti sækjandi á að nokkrum vikum eftir að Íris sendi skjalið á lögreglu hafi hún mætt á lögreglustöð í skýrslutöku þar sem hún ítrekaði ásakanir um grófa nauðgun sem hafi leitt til áverka.

Íris sagði að daginn sem hún gaf skýrslu hefði hún verið undir miklu andlegu álagi. Hún hefði verið handtekin þennan dag og þolandi skrifað um hana færslu á Facebook. Á þessum tíma hefði hún verið illa haldin af áfallastreitu og það væri mjög erfitt að vera í skýrslugjöf.

Sækjandi spurði þá hvort Íris væri að segja að það færi eftir því í hvernig skapi hún væri hvort hún sakaði menn um nauðgun. Vísaði sækjandi til þess að framburður hennar væri á miklu reiki. Hún hafi reynt að saka þolandann um nauðgun, síðar hélt hún því fram að hún hafi aldrei hitt hann og svo að þau hafi bara hist einu sinni. Hún kannast ekki við að hafa sofið hjá þolandanum, þrátt fyrir að hann lýsi samskiptum þeirra sem svo að þau hafi varið einu kvöldi saman þar sem þau stunduðu samfarir.

„Ég ætti að vita hvort ég hafi verið að stunda kynlíf með einhverjum manni eða ekki“

Sækjandi tók fram að ásakanir Írisar hafi falið í sér grófar lýsingar á nauðgun og líkamsárás. Hvernig hafi henni dottið í hug að leggja fram slíkar ásakanir sem ættu við engin rök að styðjast. 

„Ég get ekki svarað því“

Segist of miðaldra fyrir TikTok

Hún er eins sökuð um að hafa stofnað fjóra falska aðganga að TikTok þar sem hún birti fjölda færslna þar sem hún birti mynd af þolanda og dóttur hans. Íris kannast ekkert við það og fullyrðir að hún hafi aldrei notað TikTok. Hún sé of miðaldra til þess. Engu að síður tengdi rannsókn lögreglu raftæki Írisar við þessa aðganga. Hún kann engar skýringar á því en vísar til þess að fleiri en hún hafi haft aðgang að tækjum hennar.

Eins er henni gert að sök að hafa ítrekað tilkynnt þolandann til barnaverndarnefndar undir fölsku nafni og einnig í nafni annars þolanda í málinu. Hún neitar sök en gengst við því að hafa einu sinni tilkynnt viðkomandi í eigin nafni en þar hafi hún verið að svara fyrir sig eftir að þolandi og fjölskylda hans tilkynntu hana.

Er Írisi svo gert að sök að hafa sent erindi á vinnuveitanda þolandans þar sem hann er borinn þungum sökum. Ákæruvaldið telur að þar hafi Íris verið að vega að starfsöryggi þolandans. Enn og aftur neitar Íris sök, jafnvel þó að tölvupósturinn hafi verið sendur af netfangi sem tengist fartölvu hennar.

Íris er eins gert að sök að hafa haldið því fram í þáverandi vinnu sinni í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu að þolandi væri kærasti hennar. Sækjandi segir fjölda vitna hafa borið á þann veg. Íris neitar sök. 

Kannaðist ekkert við hana fyrir utan IKEA

Vill Íris meina að ásakanir þolandans fái ekki staðist. Hún hafi rekist á hann fyrir utan IKEA fyrir skömmu og hann þar heilsað henni og virtist ekki kannast við hana.

„Hann veit ekkert hver ég er þannig að allt þetta mál er mjög skrítið og ég skil ekki neitt og veit ekki neitt.“

Íris telur málið allt með ólíkindum og sakar lögreglu um að hafa farið offorsi gegn henni. T.d. hafi hún óvart hurðað annan bíl fyrir slysni og þá verið handtekin og send í fangaklefa. Þegar fölsk dánartilkynning birtist um einn þolandann í Morgunblaðinu hafi lögreglan handtekið hana með miklum látum fyrir framan börnin hennar og hún þurft að dúsa í fangaklefa í um sólarhring.