Aðalmeðferð er nú hafin í máli lögreglustjórans á Suðurnesjum gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur, en málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Íris Helga er ákærð fyrir umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum og aðstandendum þeirra og einnig fyrir rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og brot gegn barnaverndarlögum. Ákæran í málinu telur 17 blaðsíður og eru ákæruliðirnir 68 talsins.
Þar sem meintir þolendur eru þrír og ákæruliðirnir margir er reiknað með að aðalmeðferðin taki fjóra daga. Nú á fyrsta degi situr Íris Helga fyrir svörum hvað varðar hvern ákærulið fyrir sig.
Sjá einnig: Meinti eltihrellirinn Íris Helga svarar til saka í vikunni - Þetta er hún sökuð um
Bara karlmaður gæti samið svona sögu
Fyrstu spurningarnar varða þann þolanda sem ekki hefur stigið fram undir nafni og verður hann hér kallaður A. Er Írisi meðal annars gert að sök að hafa áreitt hann með ítrekuðum skilaboðasendingum frá fölskum reikningum á samfélagsmiðlum, hafa komið að heimili hans ítrekað og brotið þar blómavasa, sparkað í bíl hans og reynt að afhenda honum krukku sem hún sagði innihalda fóstur barns þeirra.
Íris ber A í svörum sínum þungum sökum. Þau hafi kynnst í desember árið 2021 og átt í samskiptum og smá daðri í nokkra mánuði. Að því loknu hafi hann áreitt dóttur hennar með blómasendingum og með því að leita þær mæðgur uppi. Hún gengst við því að hafa reiðst og því komið að heimili hans til að biðja hann að láta af þessari háttsemi. Gengst hún við að hafa misst þar fyrir utan blómavasa og sparkað í dekk á bíl hans. Hún segist þó ekki hafa áreitt hann.
Vill Íris meina að bara karlmanni hefði dottið í hug að semja söguna um fóstrið. Hún hafi vissulega farið í þungunarrof á þessum tíma en það viti það flestir að fóstur séu ekki afhent í kjölfar slíks í krukku.
Missti vasann viljandi
Hvað varðar blómavasann gengst Íris við því að hafa misst hann fyrir utan heimili þolanda. Hún hafi ætlað að skila honum. Þolandi hafi gefið henni þennan vasa, sem hafi kostað líklega um þúsund krónur í Rúmfatalagernum, og hún viljað skila honum en misst.
Saksóknari bendir á að í yfirheyrslu hjá lögreglu hafi Íris talað um að hafa skilað vasanum með dramatískum hætti.
Íris bendir þá á að hún hafi aldrei sagt að hún hafi misst vasann óvart, þar hafi saksóknari verið að leggja henni orð í munn.
„Ég er hvatvís og snöggreiddist,“ sagði Íris og notaði sama orðalag til að skýra hvers vegna hún hafi sparkað í dekk bifreiðar brotaþola en bendir á að hún hafi sjálf tilkynnt það til lögreglu eftir að þolandi fór að deila myndbandi af því úr Ring-myndavél sinni en það hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir líf hennar.
Sendi sjálf gögn sem sýndu falskan reikning
Íris kannast eins ekki við falska aðganga á samfélagsmiðlum sem voru notaðir til að senda á þolanda, son hans, móður hans og fleiri. Bendir saksóknari þá á að Íris hafi sjálf lagt fram gögn í málinu og á þeim megi sjá einn þessara reikninga.
Íris heldur því ítrekað fram að hún hafi einnig fengið skilaboð frá fölskum reikningum og að hún hafi lagt fram alls konar gögn í málinu og líklega eitthvað af þeim skilaboðum sem hún hafi fengið sjálf, þá skjáskot sem hún hafi fengið send af samskiptum. Saksóknari bendir á að hún hafi í greinargerð sinni lagt gögnin fram sem hennar eigin samskipti.
„Ég var líka að fá fullt af skilaboðum, ég er búin að segja það margoft,“ segir Íris.
Saksóknari bendir á að á síma hennar hafi fundist falskir aðgangar. Íris heldur því þá fram að ýmislegt óútskýranlegt hafi fundist á síma hennar. Henni hafi þótt það mjög skrítið og reynt að fá lögreglu til að rannsaka hvernig á þessu stæði, en því hafi bara verið sópað undir teppið. Sakar hún lögreglu um að hafa ekki gætt hlutleysis.
Neitar Íris því eins að hafa ekið fram hjá húsi þolanda, tekið myndband af því og svo sent á hann frá fölskum aðgangi. Sagði hún þolanda hafa sakað barnsföður sinn um að aka fram hjá húsi hans en þá hafi barnsfaðir hennar setið við hlið hennar. Greinilega hafi margir keyrt þarna fram hjá.
Kannast ekki við að hafa leitað að ófrægingarherferð
Á einum tímapunkti ber saksóknari undir Írisi töluverðan fjölda af fölskum aðgöngum, en skilaboð frá öllum hafi verið áþekk þar sem talað var illa um þolanda og aðila sem tengjast honum, þar með talið fyrrverandi vinkonu Írisar.
Rannsókn lögreglu á tölvu hennar sýndi að þar hefðu margir Facebook-aðgangar verið notaðir og Facebook notað til að fletta upp þolanda og tengdum aðilum. Íris kannast ekki við þetta og tekur fram að fleiri hafi haft aðgang að tölvu hennar, svo sem annar þolandi í málinu. Margir hefðu getað notað tölvu hennar og farsíma með hennar innskráningu.
Hún svarar á sömu leið þegar borið er undir hana að í tækjum hennar hafi verið leitað að smáforritum til að hringja gabbsímtöl eða til að breyta rödd. Íris tekur fram að hún eigi börn sem nái sér í alls konar. Hún kannaðist ekki heldur við að hafa leitað að orðunum „stalker“ og „stalkers“, að heimilisfangi brotaþola, hugtakinu „smear campaign“, „gaslighting“, „email without verification“ og fleira.
Saksóknari heldur áfram að bera undir Írisi gögn sem fundust á raftækjum hennar. Hún kannast ekki við neitt, þar með talið forrit sem ætluð eru til að hringja fölsk símtöl, gabbsímtöl, til að gefa upp fölsk staðsetningargögn og annað. Mögulega hafi börn hennar notað eitthvað slíkt, svo sem til að spila Pokémon-leik.
Íris tekur fram að á þessum tíma hafi hún verið að slíta sambandi við barnsföður og eins að takast á við meiðyrðamál við þolanda og konu hans, en því máli lauk með dómsátt sem hún telur að hafi nú verið brotið gegn. Íris höfðaði það mál vegna Facebook-færslu.
Tekur Íris fram í skýrslugjöf sinni að síðustu fimm árin hafi verið mjög erfið og segist glíma við áfallastreitu.