„Ég get ekki svarað þessu,“ segir Íris Helga Jónatansdóttir aftur og aftur í Héraðsdómi Reykjaness þegar saksóknari ber undir hana ákæruliði.
Fram hefur komið í réttarhöldunum yfir henni í dag að rannsókn á raftækjum Írisar leiddi í ljós að þau voru notuð til að stofna töluverðan fjölda af fölskum netföngum og samfélagsmiðlum sem voru svo notaðir til að áreita einn brotaþola í málinu, sambýliskonu hans og fjölskyldu.
Sjá einnig: Íris Helga kannast hvorki við falska aðganga né fóstur í krukku – „Ég er hvatvís og snöggreiddist“
Ítrekað tekur Íris Helga fram að hver sem er hafi getað komist í tölvu hennar á því tímabili sem meint brot áttu sér stað. Sjálf segist hún hálftækniheft og ekki fær um að framkvæma það sem henni er gert að sök.
Þegar hér er komið við sögu hefur saksóknari farið yfir rétt um helming ákæruliða en til þessa hafa þeir allir fjallað um meint brot gegn karlmanni sem Íris átti í samskiptum við um nokkurra mánaða skeið fyrir um fimm árum. Sá maður fór síðar í sambúð með vinkonu Írisar en meint áreitni mun þá hafa beinst gegn henni líka. Þolanda og sambýliskonunni fæddist síðar barn.
Það þekkja mig allir þarna
Írisi er meðal annars gert að sök að hafa dreift óhróðri um þolanda með því að bera miða í póstkassa annars vegar í Reykjanesbæ og hins vegar í Suðurnesjabæ. Er þolandi þar borinn þungum sökum.
Íris þvertekur fyrir þetta. Hún segist vera vel þekkt í báðum bæjarfélögum og því hefði hún aldrei getað dreift miðunum án þess að einhver sæi til hennar.
„Það þekkja mig allir þarna, það er ekki séns að enginn hafi séð mig labba í hús.“
Um sé að ræða lítil bæjarfélög þar sem allir þekki alla.
„Ef einhver prumpar í Vogunum frétta það allir,“ segir Íris Helga. Hún giskaði á að þolandi væri að ljúga þessu eða hann hefði útbúið miðana sjálfur til að koma á hana höggi. Sækjandi velti því þá fyrir sér hvers vegna þolandi ætti að dreifa miðum með falskar ásakanir um hann sjálfan. Hvað hefði hann á slíku að græða? Benti Íris þá á að miðarnir væru meðal gagna í sakamáli gegn henni.
Eins var hún sökuð um að hafa hengt upp miða í verslunum þar sem kynferðislegt nudd var auglýst í nafni sambýliskonunnar.
Gat ekki tilkynnt því hún vissi ekki um barnið
Síðar í skýrslugjöfinni er hún sökuð um að hafa ítrekað sent falskar tilkynningar til barnaverndar vegna barns þolanda og sambýliskonu hans. Íris neitar þar sök og segist ekki hafa vitað af þessu barni. Hún hafi fyrst vitað um tilvist þess vegna þess máls sem hún er nú ákærð fyrir.
Sumum gæti þótt áhugavert að ekki sé hægt að bera miða í hús í Suðurnesjabæ án þess að tekið sé eftir því en á sama tíma hafi Íris ekki frétt af barni sem fæddist í húsi sem hún lýsir fyrir dómi að hafi verið í um 100 metra fjarlægð frá hennar eigin heimili.
„Ég forðaðist þau eins og heitan eldinn. Þau keyptu sér hús innan við 100 metra frá húsinu mínu.“
Tilkynningarnar fölsku voru raktar til IP-tölu Írisar og fartölvu hennar. Enn og aftur vísar hún til þess að hún hafi ekki ein haft aðgang að tækjunum. Hún hafi á þessum tíma verið í sambandi við annan þolanda í málinu og mögulega standi hann á bak við þetta, enda hafi honum verið illa við fyrrum vinkonu Írisar og sambýlismann hennar.
Benti Íris eins á að barnsfaðir hennar og fleiri hefðu haft aðgang að raftækjum hennar. Þegar borin var undir hana færsla sem birtist á samfélagsmiðlum þar sem þolandi var sakaður um að hafa vanrækt barn sitt hélt Íris því fram í skýrslutöku að barn hennar hefði játað að hafa birt færsluna í viðurvist föður síns og starfsmanna barnaverndar. Við nánari skoðun könnuðust þó hvorki barnsfaðirinn né barnavernd við slíka játningu en Íris sagði fyrir dómi í dag að hún hafi ítrekað verið dregin í skýrslutökur og verið undir gífurlegu álagi. Hafi verið lagt hart að henni að svara í löngum yfirheyrslum og upplifði hún að hún þyrfti að gefa upp einhver nöfn.
Eins kemur fram að barnið hafi sagt í viðtali hjá barnavernd að það hefði þurft að gera hluti fyrir foreldra sína sem ekki væru í lagi, svo sem að sprauta sírópi inn um bréfalúgu, en einn ákæruliðanna fjallar einmitt um það atvik. Íris telur að barn hennar hafi verið þvingað til slíkrar frásagnar af barnavernd.
Húmor sem var ekki fyndinn
Vinur Írisar er meðákærður í málinu en saksóknari las upp úr skýrslu sem lögregla vann um rafræn samskipti Írisar og hans á þeim tíma sem ákæran nær til. Þar ræddu þau um að maka skít á útidyr og bifreið þolanda. Meðákærði virðist leggja þetta til og Íris virðist taka vel í það. Meðákærði lýsir því nokkuð nákvæmlega hvað hann ætli sér að gera og upplýsir Írisi svo þegar því er lokið. Ætla má af máli saksóknara að meðákærði hafi sent myndband af athæfinu en verjandi meðákærða mótmælti því að myndbandið yrði spilað í dómsal.
Íris vísaði til þess að hún og meðákærði hefðu verið vinir og verið að grínast í einkasamtali. Það hefði enginn ásetningur verið á bak við þau orð sem þar féllu.
„Þetta er húmor, ég skil í dag að þetta er ekkert fyndið en þarna var þetta bara grín.“
Eins er Íris sökuð um að hafa sent tölvupóst bæði á vinnuveitanda þolanda og sambýliskonu hans með fölskum ásökunum og ógnað þar með starfsöryggi þeirra. Íris neitar sök en kann engar skýringar á því hvers vegna tölvupósturinn var rakinn til tölvu hennar.
Hefur hún ítrekað í dag vísað til þess að þolandi hafi brotið gegn dóttur hennar. Fyrst talaði hún um að hann hefði verið að senda henni gjafir með óviðeigandi hætti en síðar um daginn fór hún að lýsa kynferðislegri áreitni.
Hún sakar eins lögregluna um að hafa horn í síðu hennar. Hafi hún óskað eftir því að öðru embætti yrði falið að rannsaka málið enda séu samfélögin á Suðurnesjum lítil og hafi rannsóknarlögreglumenn því þekkt til hennar. Hafi lögregla fullyrt að Íris væri „snargeðveik“ og með persónuröskun. Enginn hafi viljað heyra það sem hún hafði að segja og að rannsóknin hafi frá upphafi borið með sér að hún væri talin sek.
Hefur Íris dregið upp þá mynd af ákærunni að þar sé verið að ákæra saklausa konu. Það sé hún sem hafi orðið fyrir áreiti þolanda sem hafi auk þess brotið gegn barni hennar. Íris segist nú glíma við flókna áfallastreitu.
Fréttin hefur verið uppfærð