Breskri göngukonu á fimmtugsaldri blöskraði ruslið og draslið sem blasti við henni í hverasvæðinu í Reykjadal. Segir hún að öllum hafi verið sama um þetta.
Rachel Sutcliffe, 42 ára bresk göngukona og leiðsögumaður, blöskraði umgengnin á hverasvæðinu í Reykjadal eins og segir í frétt The Daily Mail um málið. Fann hún tugi kílóa af fatnaði, handklæðum, bjórdósum og fleiru á víð og dreif.
Reykjadalur, við Hveragerði, er einn af vinsælustu ferðamannastöðum landsins. Sérstaklega eru vinsælar gönguleiðirnar og þar ganga iðulega um 1000 manns á dag. Þá hefur áhugi á fjallahjólamennsku aukist mikið á undanförnum árum.
Rusl og veggjakrot
„Ég gekk upp og kom síðan niður með um 15 kíló af rusli sem fólk hafði skilið eftir þarna,“ segir Rachel. „Þetta var þungt. Öllum var sama ... Sjáið þennan dásamlega stað.“
En Rachel var ekki sama. Hún ákvað að gera eitthvað í málinu og hreinsa ruslið. Klukkutímum saman tíndi hún rusl og burðaðist svo með það langa leið.
En það var ekki aðeins rusl á svæðinu sem var til vitnis um slæma umgengni. Heldur einnig veggjakrot á innviðunum á svæðinu. Það var eitthvað sem Rachel gat ekki tínt og fjarlægt.
Viðkvæm náttúra
Skilti eru á svæðinu þar sem fólk er hvatt til þess að halda sig við merktar gönguleiðir og að virða náttúruna, einkum hið viðkvæma hverasvæði. Fólk eigi ekki að skilja neitt eftir sig.
„Að skilja ekkert eftir sig er hugtak sem virðist ekki vera til í orðaforða sumra,“ segir Rachel bálreið yfir umgengninni. „Þetta er virkilega sorgleg sjón. Hvers vegna gera fólk svona? Hvernig hefur það verið alið upp?“
Lofuðu að hjálpa en sviku það
Þar sem um var að ræða töluvert magn af rusli bað Rachel annað fólk hvort það gæti hjálpað sér að bera það til byggða, sem er umtalsvert löng leið. Um 90 mínútur. Sumir vildu hjálpa en aðrir hundsuðu hana.
„Ég reyndi að ganga frá þessu. Ég setti þetta allt í einn poka og tók hann með mér niður aftur,“ segir hún. „Hópur fjögurra ungra manna sagðist ætla að hjálpa mér. Síðan gengu þeir fram hjá mér, um það bil 30 mínútum eftir að ég hóf gönguna niður, en ég var hægfara og þurfti sífellt að stoppa. Þeir virtust dálítið vandræðalegir og gengu mjög hratt fram hjá mér. Þeir buðust ekki einu sinni til að hjálpa mér með ruslapokann, sem er dapurlegt.“