Undirbúningur er hafinn að hinu árlega verkefni, Jól í skókassa, sem félagasamtökin KFUM og KFUK standa að baki. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir.
Eins og undanfarin ár verða allar gjafir sendar til Úkraínu og þeim dreift á svæði þar sem mikil örbirgð ríkir. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.
„Við erum afar þakklát öllum þeim sem taka þátt í þessu verkefni með okkur. Það er dýrmætt og góður boðskapur að kenna börnum okkar og barnabörnum að hugsa til þeirra sem minna mega sín. Þetta er hefð sem hefur skapast í mörgum fjölskyldum, skólum, félagsheimilum og vinnustöðum, að taka sér tíma og pakka í jólakassa sem komið er með til okkar. Við höfum að jafnaði sent fjögur til fimm þúsund kassa á ári. Nú erum við að fara af stað með þetta verkefni í 23. sinn og væri gaman að ná yfir fimm þúsund kössum,“ segir Ingibjörg Valgeirsdóttir, verkefnisstjóri Jóla í skókassa.
Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki eru hvött til að styðja verkefnið með gjöfum. Óskað er eftir kössum sem henta börnum afmismunandi kyni og á mismunandi aldri, en gengið er út frá því að í hverjum kassa sé a.m.k. einn hlutur úr hverjum eftirtalinna flokka; skóladót, leikföng, hreinlætisvörur, sælgæti og föt.
Hægt er að koma með kassa frá 9. til og með 14. nóvember á Holtavegi 28. Á þeim dögum koma saman yfir 50 sjálfboðaliðar sem taka á móti kössunum og sjá um að pakka í gáminn. Einnig eru sjálfboðaliðar úti á landi sem sjá um að taka á móti kössum á sínum svæðum. „Við erum stolt af þessu teymi hjá okkur. Þetta er fólk sem gefur sinn tíma í þágu verkefnisins. Við viljum líka þakka styrktaraðilum verkefnisins sem styðja okkur með framlagi sínu, hvort sem það er með sjálfboðavinnu, flutningi á gámi eða vörum í kassana,“ bætir Ingibjörg við, en á meðal helstu styrktaraðila verkefnisins eru Bónus, Eimskip, Olís, Samhentir, Bananar og Krabbameinsfélagið.
Frekari upplýsingar um verkefnið og hvernig hægt er að styðja við það má finna á vefsíðu KFUM og KFUK á Íslandi.