Sænskur eigandi fjölbýlishúss í Lindingö, sem er sveitarfélag skammt frá Stokkhólmi, hefur endurheimt húsið úr höndum íbúa þess, sem var hópur rússneskra njósnara. Tók það eigandann tólf ár að fá húsið úr höndum rússanna sem borguðu aldrei leigu.
Sænska ríkissjónvarpið SVT hefur fjallað töluvert um húsið meðal annars í sérstakri heimildarmynd en fréttamaður og myndatökumaður þess fylgdu eigandanum eftir þegar hann fór inn í húsið í fyrsta sinn, en hinir rússnesku íbúar höfðu ávallt neitað honum um inngöngu.
SVT greindi frá því fyrst árið 2023 að íbúar hússins væru njósnarar sem hefðu fengið inngöngu í Svíþjóð á þeim grundvelli að þeir voru diplómatar í rússnesku utanríkisþjónustunni.
Deilurnar um eignarhaldið á húsinu ná aftur til tíunda áratugar síðustu aldar þegar rússneska ríkið tók yfir eignir þýsks kaupsýslumanns, Franz Sedelmayer, í Rússlandi. Hann stefndi rússneska ríkinu og krafðist þess að rússneskar eignir utan Rússlands yrðu haldlagðar. Ein af þessum eignum var fjölbýlishúsið í Lindingö. Sedelmayer vann málið árið 2014 og húsið var selt á uppboði og féð sem fékkst fyrir það fór upp í bætur til hans.
Kaupandinn var Svíinn Stefan Häge. Hann fór fram á að hinir rússnesku íbúar þess yfirgæfu húsið en þeir neituðu að gera það, borguðu honum heldur ekki leigu og neituðu að hleypa honum inn í húsið.
Síðan eru liðin 12 ár og Häge hefur reynt að fá hjálp sænska ríkisins við að endurheimta eign sína, en án mikils árangurs þar til nú. Íbúarnir eða kannski réttara sagt hústökufólkið hafa rýmt húsið og Häge fékk lyklana afhenta. Það liggur ekki fyrir hvers vegna Rússarnir ákváðu að fara en í fréttum SVT má sjá að úr sumum íbúðum hafa þeir tekið allt naglfast með sér.
Häge segir ljóst að það verði að ráðast í viðgerðir en það verði að koma í ljós hvort hann leigi íbúðirnar í húsinu út eða geri einhverjar breytingar á því og selji jafnvel einstaka íbúðir.