Elías Pétursson, fyrrverandi bæjarstjóri og bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um sprungu í Grindavík í janúar árið 2024, vill svör um hvers vegna aðgerðum til að finna lík hans hafi verið hætt. Elías segir að vitað sé hvar hann sé.
„Ekki spurning um að finna hann… heldur um að sækja hann,“ segir Elías í færslu á samfélagsmiðlum.
Sigmenn á vegum lögreglunnar á Suðurnesjum fóru ofan í sprungu við Vesturhóp í Grindavík þar sem Lúðvík féll niður fyrir nærri þremur árum síðan. En hann var þar að vinna við jarðvegsframkvæmdir eftir jarðhræringarnar miklu. Aðgerðin bar hins vegar ekki árangur og var henni hætt og sagt að ekki yrði haldið áfram.
„Vonbrigði mín, og okkar, eru mikil og ég ætla ekki að reyna að lýsa þeim frekar. Ég veit að þeir sem misst hafa ástvini af slysförum eða í hamförum, og ekki fengið að kveðja þá, skilja hvað ég á við,“ segir Elías. Fyrir hönd fjölskyldunnar þakkar þeim sem tóku þátt í aðgerðinni. Það þurfi hugrekki að fara þangað niður.
„En ákvörðunin um að hætta alfarið kallar á svör,“ segir Elías.
Kalla eftir svörum
Eftir mikinn þrýsting frá fjölskyldunni hafi verið ákveðið að vinna öryggismat á aðgerðinni, á vegum verkfræðistofunnar COWI. Þar segir:
„Ef engar vísbendingar finnast með myndavélinni, hvar líkamsleifa Lúðvíks gæti verið að finna, þarf að meta hvort halda eigi leit áfram og þá hvaða skref væru tekin næst.“
„Eftir leitina fengum við hins vegar að vita að verkefnið hefði frá upphafi verið afmarkað við sjónskoðun og myndavélar, og að frekari áfangar hefðu aðeins komið til greina ef vísbendingar fyndust. Okkur hafði ekki verið gerð grein fyrir þeirri afmörkun. Þarna er grundvallarmunur,“ segir Elías. Hafi hann óskað eftir gögnum og skýringum sem ekki hafa borist.
„Rúmu hálfu ári eftir að minnisblað COWI lá fyrir var leitað part úr degi. Við og ýmsir aðrir teljum líklegast að Lúlli liggi í hrunhaugnum, undir þjöppunni á 13 til 16 metra dýpi. Ef svo er voru litlar sem engar líkur á að sjónskoðun og myndavélar fyndu hann. Það hlýtur að hafa legið fyrir áður en farið var af stað,“ segir Elías. „Frá fyrsta degi höfum við sagt að fara þurfi varlega. Enginn á að leggja líf sitt í óþarfa hættu til að sækja Lúlla. Það höfum við aldrei beðið um og munum aldrei biðja um.“
Önnur leið
Hins vegar sé önnur leið fær. Það er að grafa niður í sprunguna frá hlið, ofan eða neðan við slysstaðinn. Þar með þurfi enginn að síga ofan í sprungu. Þetta hafi Elías kynnt fyrir lögreglustjóra strax árið 2024.
„Nú hefur það verið reynt. Leiðin sem ég hef lagt til hefur hins vegar aldrei verið metin. Hún var talin ótímabær… hún var tímabær þá og er það svo sannarlega nú,“ segir hann. „Sumir segja við okkur að best sé að leyfa Lúlla að hvíla þar sem hann er. Ég skil þá hugsun. En Lúlli valdi sér ekki þennan stað. Hann var að vinna. Börnin hans eiga rétt á að fá að kveðja föður sinn og fylgja honum til grafar. Það er sú lúkning sem við biðjum um, í einum hluta þessa ömurlega máls.“
Halda áfram
Mun fjölskyldan halda áfram málinu. Meðal annars að beina erindi til Grindavíkurbæjar um að hafa forgöngu um að Lúðvík verði grafinn upp og að ekki verði ráðist í niðurrif hússins eða fyllingu sprungunnar fyrr en það hafi verið reynt.
„Eitt er þó ljóst. Við gefumst ekki upp. Við munum halda áfram svo lengi sem stætt er… og mögulega eitthvað lengur,“ segir hann að lokum.