Fréttir

Dauði þekkts Hollywood-leikara rakinn til of stórs skammts af peptíðum

Mynd
Richard Norton var leikari og bardagalistamaður.

Ástralski leikarinn og bardagalistamaðurinn Richard Norton, sem lék meðal annars á móti Chuck Norris og Jackie Chan í kvikmyndum á löngum ferli sínum, lést í mars á síðasta ári eftir að hafa tekið tvöfaldan skammt af peptíðum sem læknir hafði ávísað honum.

Dánardómstjóri í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að sprauta sem leikarinn gaf sjálfum sér og innihélt peptíð sem ekki höfðu hlotið markaðsleyfi hafi orðið honum að bana.

NBC News greinir frá málinu en Norton var þekktur í Hollywood, bæði sem leikari og bardagalistaþjálfari. Hann hafði meðal annars þjálfað stórstjörnur á borð við Ben Affleck, Tom Hardy, Scarlett Johansson og Margot Robbie. Þá starfaði hann áður sem áhættuleikari og lífvörður tónlistarfólks á borð við David Bowie og Stevie Nicks.

Norton var að jafna sig eftir axlaraðgerð þegar hann leitaði til læknisins Jerzy Muchnicki í mars 2025 vegna þreytu og verkja. Hann hafði áhuga á svokallaðri peptíðameðferð, sem hefur notið vaxandi vinsælda meðal fólks sem vill meðal annars flýta fyrir bata, bæta svefn og auka líkamlega getu.

Læknirinn ræddi við Norton um meðferðina, þar á meðal að hún væri tilraunakennd og gæti haft áhættu í för með sér. Norton samþykkti meðferðina og fékk ávísað peptíðunum CJC-1295 og ipamorelin.

Sagðist sofa betur og hafa meira úthald

Norton virtist í fyrstu ánægður með árangurinn. Þann 25. mars greindi hann lækninum frá því að honum liði betur og að meðferðin hefði dregið úr einkennum sem höfðu truflað hann.

Þremur dögum síðar hafði hann samband við læknastofuna og óskaði eftir nýju glasi af efnunum þar sem hann sagðist hafa misst það fyrra í gólfið og brotið það.

Í samtalinu sagðist Norton sofa betur, finna fyrir minni verkjum og hafa meira úthald við líkamsrækt. Hann sagðist ekki hafa fundið fyrir neinum aukaverkunum.

Hins vegar hafði Norton áður greint hjúkrunarfræðingi frá því að hann hefði verið að sprauta sig með tvöföldum þeim skammti sem honum hafði verið ávísað. Hjúkrunarfræðingurinn ráðlagði honum að fara aftur í réttan skammt frá og með næstu viku.

Síðar sama kvöld, eftir að Norton hafði gefið sér annan skammt af peptíðunum, dró skyndilega til tíðinda.

Eiginkona hans, Judy Green, hringdi á læknastofuna og greindi frá því að eiginmanni hennar hefði skyndilega orðið mjög heitt og hann roðnað í framan. Skömmu síðar hefði hann hnigið niður og misst meðvitund.

Norton var fluttur í skyndi á sjúkrahús en lést tveimur dögum síðar, þann 30. mars 2025.

Læknirinn gagnrýndur harðlega

David Ryan, dánardómstjóri í Melbourne, komst að þeirri niðurstöðu að peptíðasprautan hefði hrundið af stað þeirri atburðarás sem leiddi til dauða Nortons.

Í skýrslu hans er læknirinn gagnrýndur fyrir að hafa heimilað Norton að fá meira af efnunum án þess að kynna sér skráðar upplýsingar um að hann hefði tekið þau í of stórum skömmtum.

Læknirinn er einnig gagnrýndur fyrir að hafa ekki rætt beint við Norton til að ganga úr skugga um að hann notaði efnin rétt og kanna hugsanlegar aukaverkanir.

Muchnicki hefur samkvæmt skýrslunni viðurkennt mistök sín, beðist afsökunar og ákveðið að hætta að ávísa peptíðum.

Vaxandi áhyggjur 

Samkvæmt ástralska ríkisfjölmiðlinum ABC er talið að andlát Nortons sé fyrsta staðfesta dauðsfallið í Ástralíu sem tengist notkun peptíða sem ekki hafa hlotið opinbert markaðsleyfi.

Peptíð eru stuttar keðjur amínósýra og eru sum þeirra notuð í viðurkenndum lyfjum. Önnur hafa hins vegar verið markaðssett sem heilsu- og frammistöðubætandi efni þrátt fyrir að takmarkaðar rannsóknir liggi fyrir um öryggi þeirra og virkni.

Á samfélagsmiðlum hafa áhrifavaldar meðal annars haldið því fram að tiltekin peptíð geti hraðað bata eftir meiðsli, bætt svefn, stuðlað að yngra útliti og jafnvel lengt lífið.

Dánardómstjórinn hefur nú hvatt áströlsk lyfjayfirvöld til að herða reglur um notkun peptíða sem ekki hafa hlotið markaðsleyfi.

Málið hefur jafnframt vakið athygli í Bandaríkjunum þar sem grár markaður fyrir slík efni hefur farið vaxandi á undanförnum árum.