Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður á Samstöðinni, greinir frá óþægilegri uppákomu þegar Vottar Jehóva vildu fá að komast inn á heimili hans. Ung dóttir hans var ein heima.
„Mig langar að vara við Vottum Jehóva. Dóttir mín, 16 ára, lenti í því í dag í Þingholtunum að þeir hringdu dyrabjöllunni þegar hún var ein heima,“ segir Björn í færslu á samfélagsmiðlum. „Vottarnir voru vægast sagt ágengir í trúboði sínu, gerðu hvað þeir gátu til að fá að komast inn í íbúðina! Stúlkan var ein heima.“
Leið ekki vel
Segir hann að dóttur inni hafi ekki liðið vel með yfirganginn. Að lokum hafi henni tekist að losna við Vottana.
„Með samþykki hennar birti ég aðvörun um reynsluna, ekki síst til að foreldrar geti rætt við eigin börn, varað við þessu hyski. Um að gera að skerpa á því fyrir börnunum að þau eru í fullum rétti að meina svona mönnum að komast inn í hús,“ segir Björn. „Sumum börnum gæti fundist óþægilegt að verjast þrýstingi sem mennirnir tveir sýndu dóttur minni að hún hleypti þeim inn í stofu. Fínt að ræða þessar stöður.“
Hafi Vottarnir skilið eftir bækling.
„Ef marka má miðann sem Vottarnir skildu eftir eru þeir að reyna að krækja í ungar sálir með því að kveikja von í myrkri - eitthvað ræddu þeir umhverfismálin. Í stuttu máli sagt: Passið ykkur á svona dúddum. Upplýsið ungmenni og börn um hvers má kannski vænta. Og varúðin nær vitaskuld til allra sem börn ekki þekkja en reyna að komast inn til þeirra,“ segir hann að lokum.