Fréttir

Benjamín greindist með sjaldgæfa tegund hvítblæðis aðeins 9 vikna gamall

Mynd

Í hlaðvarpinu 4. vaktin, sem þær Lóa Sigríður Ólafsdóttir og Sara Rós Kristinsdóttir stýra er rætt um ýmis málefni sem tengjast fötluðum og langveikum börnum og fjölskyldum þeirra. Undanfarnir þættir hafa fjallað um erfitt og flókið málefni; hvítblæði hjá börnum. Þær hafa verið með þrjá fræðsluþætti sem hafa fjallað um allt frá hvað er blóð yfir í hvítblæðið sjálft og svo í undirtegundir þeirra. 

Mynd

Í framhaldi af þessum fræðsluþáttum koma viðtöl við foreldra og félagasamtök sem styðja við bak fjölskyldna sem standa í þessari flóknu stöðu. Í 94. þætti fá þær Eygló Guðmundsdóttur til sín sem er með þá lífsreynslu að sonur hennar greindist ungur með hvítblæði en lést árið 2015 vegna fylgikvilla sem urðu til vegna sjúkdómsins. Sonur hennar Benjamín Nökkvi Björnsson, fæddist árið 2003 og greindist aðeins níu vikna gamall með ungbarnahvítblæði eða infant-ALL. Það er  sjaldgæf og illvíg undirtegund af hvítblæði og greinist einungis hjá börnum undir eins árs aldri.  Hann náði að sigrast á krabbameininu tvisvar sinnum en hann endurgreindist þegar hann var tæplega 20 mánaða gamall. Hann fékk í báðum tilfellum beinmergsskipti og var eldri bróðir hans gjafinn. Afleiðingar meðferðar gegn krabbameini geta tekið þungan toll og var það raunin hjá Benjamín, þar sem graft versus host disease var alvarlegt hjá honum. Benjamín hafði verið krabbameinslaus í um 10 ár þegar hann lést í faðmi fjölskyldu og ástvina aðeins 11 ára gamall. 

Mynd
Benjamín Nökkvi Björnsson
Mynd
Benjamín Nökkvi ásamt móður sinni og systkinum.

Þegar Eygló er spurð um ferlið og hvernig krabbameinið uppgötvaðist þá segir hún Benjamín hafi verið aðeins slappur dagana á undan. Þau höfðu í mörgu að snúast og gera á þessum tíma enda voru þau með þrjú börn undir fimm ára aldri á þessum tíma, en ásamt Benjamíni þá áttu Eygló og maður hennar Hrafnhildi sem var þá tveggja ára og Nikulás sem var að fagna fimm ára afmæli sínu. Rétt fyrir greiningu Benjamíns höfðu þau verið að halda upp á afmæli Nikulásar.  Mamma Eyglóar sem er hjúkrunarfræðingur studdi grun hennar um að eitthvað væri að þann dag sem Eygló hafði fundið á sér að hún ætti að fara með Benjamín á Barnaspítalann en henni hafi þó alls ekki grunað jafn alvarleg veikindi eins og raunin var segir Eygló sjálf. 

Mynd
Fjölskyldan.

„Þið þurfið að vera hérna, strákurinn ykkar er bara eitthvað mjög mikið veikur“

Mamma Eyglóar fór með henni og Benjamín á spítalann, þegar það var búið að gera rannsóknir á honum og þær bíða um stund nefnir Eygló stundina sem hún áttaði sig á alvarleika málsins: 

„Læknirinn kemur aftur um miðnætti og þá sé ég bara það er eitthvað skrýtið í gangi, bara segja eitthvað svona, verður eitthvað svona rosalega skrítinn í framan og sagði: „þið þurfið að vera hérna, strákurinn ykkar er bara eitthvað mjög mikið veikur.“

Þá talar Eygló um að hafa fengið upplýsingar sem hún hafi alls ekki skilið þá eða að hann hafi verið með 250.000 í hvítum blóðkornum. Seinna fékk hún þær upplýsingar að venjulega séu hvítu blóðkornin á  milli 5-12.000. Eygló talar um að muna ekkert nánast frá fyrstu dögunum eftir greiningu Benjamíns vegna áfallsins. Lífið breyttist hjá þeim á augabragði frá „venjulegu” fjölskyldulífi yfir í að þau þurftu þarna að skipta sér upp á milli tveggja heima. Annað að vera heima með hin börnin og halda uppi eins eðlilegu fjölskyldulífi þar og hitt að stíga inn í að tilheyra nýjum veruleika inn á spítalanum með alvarlega veikt barn. Niðurstaðan var sú að Eygló fylgdi litla unganum sínum enda hann enn á brjósti á þessum tíma og úr varð langt tímabil af einangrun.  Þegar barn veikist svona þá hefur það gríðarleg áhrif á fjölskylduna í heild.

Mynd
Mynd

Benjamín læknaðist af krabbameininu en greindist svo í annað sinn 

Lyfjameðferðin gekk ekki nægilega vel og því var ákveðið að fara með Benjamín í beinmergsskipti. Úr varð að Benjamín læknast af krabbameininu og við tekur tæpt ár af eðlilegu fjölskyldulífi. Mætti samt segja eins eðlilegu og hægt er að hafa það enda er lífið gjörbreytt eftir svona áfall og óttinn við að krabbameinið komi aftur alltaf til staðar.  En þegar það var staðan og Benjamín greinist aftur lýsir Eygló þeirri reynslu sem gífurlegu áfalli og það hafi ekki verið nein einkenni sem gáfu til kynna að krabbameinið væri komið aftur upp. Benjamín hafði verið lasinn með RS vírusinn en ekkert annað sem benti til að hann væri aftur orðinn alvarlega veikur. Þau fóru fljótt eftir að hann jafnaði sig af RS vírusnum í hefðbundið eftirlit til Svíþjóðar. Blóðprufa sýndi þá að veikindin voru búin að taka sig upp aftur.

Mynd
Benjamín Nökkvi var mikill áhugamaður um fótbolta.

„Mamma nei, þá ertu sko með fjóra vængi“

Eygló segir einlæglega frá sögu Benjamíns og honum sjálfum og því hvernig karakter hann var og  nefnir hún dæmi þar sem hún hafi talað um að ætla að fá sér tattoo sem væru tveir vængir en þá hafi Benjamín sagt „mamma nei, þá ertu sko með fjóra vængi, mamma englar eru með vængi og þá verður þú með fjóra vængi og það er rosalega skrýtið“.  Hún deilir ekki aðeins af þeirri reynslu að ganga í gegnum margra ára erfið veikindi með barnið sitt heldur líka af foreldrahlutverkinu og að ala upp önnur börn á sama tíma og hvaða áhrif veikindin höfðu á líf þeirra líka. 

Mynd

Eygló hefur upplifað barnsmissir sem er sorg sem enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum. Að tala um sorgina getur verið erfitt en í þættinum tala þær um sorgina á opinskáan hátt. Eygló segir frá hvað hefur gagnast henni í úrvinnslu með sorgina og eitt af því er að hugsa um að hún hafi gert allt sem hún gat gert fyrir Benjamín og segir Sara þá: „Og þú veittir honum þetta líf sem hann átti í 12 ár”, þar sem hún er að vitna í fyrri orð Eyglóar þar sem hún segir Benjamín hafi átt líka gott líf.

Mynd
Eygló Guðmundsdóttir.

Rannsakaði lífsörmögnun foreldra barna með krabbamein og er að skrifa bók

Eygló hefur einnig sinnt skrifum og er enn í vinnslu að klára bók sína, Bréf til Benjamíns, sem má segja að sé hluti af hennar úrvinnslu úr þeim ólgusjó sem ferlið þeirra var frá greiningu á krabbameini og því sem tók við eftir að Benjamín kvaddi þessa tilvist. Eftir að Benjamín dó hefur Eygló lokið doktorsgráðu í sálfræði og þar tók hún fyrir lífsörmögnun foreldra barna með krabbamein. Seinna í hlaðvarpinu verður annað viðtal við Eygló sem mun fara dýpra ofan í þau málefni. 

Benjamín Nökkvi Björnsson 

f. 28 júlí 2003 d. 1 maí 2015

Mynd