Grunur um heiðurstengt ofbeldi hefur vaknað í nokkrum málum sem lögreglan hér á landi hefur haft til meðferðar, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu útbreitt vandamálið er á Íslandi eða hvort tilvikum hafi fjölgað.
Morgunblaðið fjallar um málið í dag en þar kemur fram að fulltrúum lögreglu, barnaverndar, skóla og fleiri aðila hafi nú í fyrsta sinn verið boðin þjálfun í notkun sérstaks áhættumatstækis vegna heiðursofbeldis.
Námskeiðið fór fram um miðjan október og var þjálfunin í höndum Protect International. Það var liður í að fylgja eftir aðgerðum gegn heiðursofbeldi sem kveðið er á um í framkvæmdaáætlun stjórnvalda í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026–2029 og landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi fyrir árin 2026–2030.
Í frétt Morgunblaðsins er vísað til svars dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, frá árinu 2024. Þar kom fram að grunur um heiðurstengt ofbeldi hefði vaknað í nokkrum heimilisofbeldismálum hjá lögreglu.
Heiðurstengt ofbeldi getur meðal annars falist í hótunum, félagslegri einangrun, þvingunum og líkamlegu ofbeldi sem réttlætt er með vísan til þess að verja meintan heiður fjölskyldu.
Mál af þessu tagi hafa einnig komið upp í nágrannalöndum okkar. Í frétt Morgunblaðsins er bent á að sérstakt sérfræðiteymi í Noregi hafi veitt ráðgjöf eða aðra aðstoð í 1.360 málum árið 2025. Rúmlega helmingur málanna varðaði börn undir 18 ára aldri.