Fréttir

Daði Már: „Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast“

Mynd
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra. Mynd/Fjármálaráðuneytið

„Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast. Lögin kveða bara á um hvernig stjórnarfundir fara fram. Þeir hafa farið að lögum,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra um óformlega fundi stjórnar Landsvirkjunar. Daði Már fór yfir brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Fundað án hans í hádeginu

Hörður lét af starfi forstjóra Landsvirkjunar í byrjun mánaðarins eftir sautján ár í starfi, hann sagði á Sprengisandi á Bylgjunni í gær að stjórn Landsvirkjunar hefði fundað án hans líkt og lög kveða á um. 

Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, hafnaði því í samtali við MBL en sagði að það um hefði verið að ræða hádegisverðarfundi þar sem stjórnin hefði hist í því skyni að ræða fundarsköp og samstarf innan stjórnarinnar. 

Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar og fyrrverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, sagði við MBL að það væri ekki hefð fyrir slíkum fundum hjá Landsvirkjun. Það hefðu verið haldnir undirbúningsfundir einu sinni á ári en þeir hefðu verið í dagskrá og forstjórinn upplýstur um þá. Telur hann það undarlegt að stjórnin hittist óformlega án vitundar forstjóra. „Í staðinn hefði kannski verið einfaldast að setja á stærri fund þar sem menn hefðu getað farið í gegnum þau mál, með vitund forstjóra. En öllu jöfnu hefði maður nú talið eðlilegt að forstjóri sæti stjórnarfundi,“ sagði Jón Björn. 

Ekki meinaður aðgangur að neinum fundi

Daði Már segir að það sé mat ráðuneytisins að stjórnin hafi farið að fullu eftir lögum. „Það er auðvitað miður að það hafi komið upp þessi trúnaðarbrestur eða hvað sem eigi að kalla þetta,“ segir hann. Engir formlegir fundir hafi verið haldnir án forstjóra. 

„Eftir því sem formaður stjórnar Landsvirkjunar segir, borðaði stjórnin saman hádegismat fyrir fundina. Það eru ekki stjórnarfundir. Okkar upplýsingar eru að honum hafi ekki verið meinaður aðgangur að neinum stjórnarfundi.“

Daði Már segir að hann hafi ekki hafnað neinum fundi með Herði í ráðuneytinu, ekki ráðuneytið heldur. Hann var upplýstur um að hann ætlaði að segja upp nokkrum dögum á undan en gekk ekki á eftir Herði um að hætta við að hætta. „Ég gerði það að vísu ekki,“ segir hann. Það sé stjórnin sem fari með stjórn fyrirtækisins, hann hafi samskipti við stjórnina sem hafi svo samskipti við forstjórann. „Hefði ég átt að gera það? Mér finnst það þá að vera að taka fram fyrir fyrirkomulagið.“

Gengið var á Daða Má hvers vegna ástæðurnar lágu ekki fyrir strax og Hörður lét af störfum. Daði sagði að ástæðan væri vegna þess að ágreiningurinn snerist um formið en ekki einstakt mál. „Hann snýst meira um hvernig ákvarðanir eru teknar og hver áhrif stjórnarinnar eru,“ sagði hann. „Það er ekki auðvelt að taka undir gagnrýni sem ég er ekki viss um að sé fyllilega réttmæt.“ 

Fyrir hans leyti sé málið fyllilega upplýst. „Hörður skilar góðu búi og hann stóð sig mjög vel í þau sautján ár sem hann stýrði Landsvirkjun.“