Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og fyrrverandi bæjarstjóri Vestmannaeyja, hefur brugðist við gagnrýninni sem hann fékk eftir að hann birti mynd af hópi manna sem sett var í samhengi við ástandið í Frakklandi.
Fjöldi manns gagnrýndi færslu Elliða, þar á meðal tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens, rithöfundurinn Illugi Jökulsson, lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og presturinn Bjarni Karlsson.
Sjá einnig: Allt logar í athugasemdakerfi Elliða
Elliði segir í nýrri færslu að þar sem ummælin hafi ekki verið hugsuð til umfjöllunar landsmiðla þá vilji hann skýra þau nánar:
„Ég hef miklar áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá ákveðnum svæðum. Sérstaklega frá löndum í Norður-Afríku, Miðausturlöndum og fl. Öfgakennd hugmyndafræði ákveðins hluta þessa fólks hefur fundið sér farveg í trúarsetningu Íslam og andúð á því sem vestrænt er. Ég veit sem er að þetta eru ekki múslimar í heild. Þetta er ákveðin hluti sem kemur óorði á aðra sem aðhyllast sömu trú. Það er rangt að gefa annað í skyn,“ segir Elliði.
„Hjá því verður þó ekki litið að þessi hópur hefur orðið meira áberandi á seinustu árum. Í Bretlandi, Frakklandi, Svíþjóð og já... líka hér á Íslandi og víðar. Þetta kemur fram í viðhorfi til kvenna, viðhorfi til samkynhneigðra, viðhorfi til tjáningarfrelsis og almennt í andstöðu við lífshætti sem byggja á vestrænum gildum.“
Hans gagnrýni beinist að stefnu sem leyfi of hraða fjölgun og að tilteknar hugmyndir, sem byggi á trúarkreddum og venjum sem gangi gegn jafnrétti og frelsi. Elliði vill stífari löggjöf varðandi innflytjendur frá Norður-Afríku og Miðausturlöndum.
„Á Íslandi höfum við of lítið skoðað þessi mál. Kannski vegna þess að það er erfitt að gera það án þess að það veki reiði eða hneykslun,“ segir hann og vísar í tölur dönsku hagstofunnar sem sýni að innflytjendum utan Vesturlanda hafi fjölgað mikið á 30 árum. „Kannanir þar sýna að atvinnuþátttaka þeirra er lægri (er þó að hækka), hlutfallslega eru sakfellingar fyrir afbrot hærri, velferðargreiðslur eru algengari og áfram má telja. Svipaða sögu er að segja frá öðrum löndum. Margir telja jafnvel að í óefni sé komið. Við höfum rétt á að ræða þessi mál hér á landi,“ segir Elliði.
„Við eigum að vanda okkur og gæta þess að fella ekki dóma yfir heilu þjóðfélagshópunum, en við eigum að ræða þessi mál, og það án þess að mótspilið sé hið klassíska rasistaspil.“
Gagnrýnin sem hann setti fram í gær hafi komið í kjölfarið á umfjöllun íslenskra miðla um mótmælin í Frakklandi en Elliði segir að ofbeldisaldan þar sé keyrð áfram af trúarkreddum og öfgavinstrimönnum. „Mér fannst eitthvað írónískt við það að nokkrum geti dottið í hug að það séu nemendafélög sem stíga þannig fram. Á meðan brenna kirkjur og verslanir þeirra þjóðfélagshópa sem þau telja sig helst eiga sökótt við,“ segir hann.
„Best er þegar hægt er að ræða þessi mál með gögnum og sömu kröfum til allra. Fólk á ekki að vera dæmt fyrir trú sína, það er rangt þegar það er gert, og það á líka við þegar ég haga orðum mínum þannig. Það ætti aldrei að dæma fólk út frá neinu öðru en þeirra eigin framgöngu.“