Nýlega birti gagnaverið At-north á Íslandi auglýsingu þar sem gagnaverum er líkt við hótel fyrir tölvur. Fyrirtækið hafi í nógu að snúast við að sinna þessum gestum, en talskona gagnaversins tók fram að „gestirnir okkar borða rafmagn“. Auglýsingin vakti athygli Bjargar Evu Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, sem hefur nú ritað grein þar sem hún fer aðeins lengra með myndlíkingu gagnaversins.
„Myndlíkingin um tölvurnar sem hótelgesti er mjög góð. En þvílíkir gestir og þvílíkt át. Eitt gagnaver getur étið rafmagn á við allan almenning í landinu. Þau eru líka drykkfelld, plássfrek, valda ónæði og eru frek á náttúruna á ýmsan hátt. Nú er í bígerð að reisa nýtt gagnaver á Bakka við Húsavík, sem borðar lítil 120 mw. Það er orka sem jafnast á við uppsett afl vindorkuversins í Vaðöldu, þegar allar 28 túrbínurnar verða komnar upp.“
Björg vísar til þess að forsætisráðherra Noregs hafi nýlega spurt hvernig fólk geti verið á móti gagnaverum þegar það nýtir sér slík á hverjum degi. Hún bendir á að almenningur hafi engu að síður áhyggjur af áhrifum gagnavera á náttúruna og orkuverð. Gagnaver séu nú hitamál í Noregi. Sumir stjórnmálaflokkar eru alfarið á móti þeim á meðan aðrir vilja takmarkanir og skýra stefnu. Fyrir mánuði voru 26 gagnaver starfandi í Noregi, fjögur til viðbótar í byggingu og 116 sem bíða leyfis til uppsetningar.
„Kröfur um að láta staðar numið koma úr ólíkum áttum. Með þeim rökum að gagnaver séu orkusugur á þröngum markaði, valdi náttúruspjöllum, tæmi vatnsból, skapi fá störf og kalli á fleiri og stærri vindorkuver. Flest séu þau reiknivélar kínverskra og bandarískra tæknirisa, sem komi norsku samfélagi ekki að gagni.“
Tækniráð Noregs komst að þeirri niðurstöðu að samfélagslegur ávinningur af gagnaverum væri takmarkaður og sambærileg skýrsla frá Finnlandi var á sama máli. Björg spyr hvar Ísland standi í þessum málum. Það sé ljóst að ríkisstjórnin vilji fjölga gagnaverum en Björg spyr hvaða gögn eigi að geyma þar og fyrir hverja.
„Á Íslandi er tilviljanakennt hvaða vitneskju við höfum um gagnaverin. Upplýsingar um þessa nýstárlegu hótelgesti eru helst í formi viljayfirlýsinga og fyrirtækjakynninga sem kallaðar eru fréttir. Yfirsýn yfir bókunarstöðu tölvuhótelanna fram í tímann er ekki öllum ljós og þaðan af síður vitum við hvað gagnaverin okkar eru að geyma eða reikna. Eru það Tik Tok myndbönd, klám, hernaðarupplýsingar, eða eitthvað sem skiptir okkur máli.“
Það sé glórulaust að ætla að taka við gagnaverum sem önnur lönd kæra sig ekki um. Ísland hafi nú þegar vonda reynslu af því að byggja upp án stefnu og nefnir Björg þá sérstaklega sjókvíaeldi og loðdýrarækt. Varasamt sé að leyfa markaðnum einum að ráða stefnunni og hvað gagnaver varðar sé það beinlínis stórhættulegt. Því spyr Björg hvað Íslendingar séu tilbúnir að leggja á náttúruna fyrir þessa óseðjandi hótelgesti og hversu mikið eigi að virkja fyrir gagnaversiðnaðinn. Náttúran eigi betra skilið en stefnulausa uppbyggingu.