Fréttir

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á hálendinu

Mynd

Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var sent á vettvang ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar og er aðgerðum nú lokið á slysstað. Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar um málið en frekari upplýsinga er að vænta síðar. Tilkynning lögreglu er eftirfarandi: 

„Skömmu eftir kl. 20:30 í gærkveldi barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið.  Viðbragðsaðilar voru ræstir út og fóru lögreglumenn, sjúkraflutningamenn ásamt björgunarsveitarfólki frá björgunarsveitunum Þingey, Stefáni í Mývatnssveit, Hjálparsveit Skáta í Aðaldal, Dalbjörg og Súlum á Akureyri á vettvang.  Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar ræst út og aðstoðaði hún við verkefnið.

Aðgerðum er nú lokið á vettvangi og viðbragðsaðilar komnir til síns heima, nánari upplýsingar verða veittar síðar.“