Fréttir

Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi

Mynd

Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var sent á vettvang ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Greindi lögregla frá þessu fyrr í dag og hefur nú birt nánari upplýsingar um slysið, en um var að ræða alvarlegt slys sem átti sér stað þegar 10 manna hópur ferðafólks á jeppum var að fara að losa fastan jeppa, en karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Samferðafólk mannsins var flutt til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti áfallahjálp í nótt en slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið upplýst um slysið.

Tilkynning lögreglu er eftirfarandi: 


„Alvarlegt slys á Gæsavatnaleið. 

Í gærkvöldi barst tilkynning til lögreglu og sjúkraliðs um alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, nánar tiltekið á Gæsavatnaleið.

Slysið átti sér stað þegar 10 manna hópur ferðafólks á jeppum voru að losa fastan jeppa. Ljóst var strax í upphafi að um alvarlegt slys var að ræða og voru viðbragðsaðilar sendir á hæsta forgangi á vettvang.

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Björgunarsveitir fluttu samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp við komuna þangað í nótt.

Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið upplýst um slysið.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu“