Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótun og barnaverndarbrot samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem féll þann 7. október sl.
Atvik máls áttu sér stað fyrir þremur árum síðan, eða í október árið 2023. Maðurinn var sakaður um að hafa ekið bifreið sinni í veg fyrir annan bíl og lokað þannig hina bifreiðina af svo ekki var hægt að komast í burtu. Síðan tók maðurinn trjádrumb úr bifreið sinni og hótaði í orði og látbragði að berja brotaþola, sem sat í bílnum og var ólögráða á þeim tíma. Með þessu þótti maðurinn hafa sýnt brotaþola vanvirðandi, ruddalegt og ósiðlegt athæfi og sett fram hótanir sem voru til þess fallnar að vekja hjá honum ótta um líf, heilbrigði og velferð sína.
Maðurinn játaði og krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Dómari taldi ekki ástæðu til að efa að játningin væri sannleikanum samkvæm og taldist maðurinn því sekur um þá háttsemi sem í ákæru var lýst. Maðurinn var með hreinan sakaferil og þótti hæfileg refsing vera 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.