Karlmaður var með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað á bifreiðaverkstæði á Akureyri í nóvember á síðasta ári. Dómari taldi það ekki gefa tilefni til refsimildunar að maðurinn taldi brotaþola hafa brotið gegn dóttur sinni fyrir nokkrum árum.
Dómurinn féll þann 25. september sl. en RÚV veitti því nýlega eftirtekt að Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði aðeins birt brot af þeim dómum sem fallið höfðu á árinu. Eftir að RÚV leitaði til Dómstólasýslunnar hefur dómurinn tekið sig á.
Maðurinn í máli þessu var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa ráðist á brotaþola á bifreiðaverkstæði með þeim hætti að hann reif í mótorhjólahjálm sem brotaþoli var með á höfðinu og hrinti honum þannig í jörðina. Síðan barði hann brotaþola ítrekað í höfuð og búk og sparkaði einnig ítrekað í höfuð hans og líkama, dró hann til á bílastæðinu með því að grípa í hálskraga á jakka brotaþola og þrýsti einnig andliti hans niður í malbikað bílastæðið. Hlaut brotaþoli af árásinni heilahristing, rifbrot og áverka víðs vegar um líkamann.
Játaði maðurinn sök en fór fram á vægustu refsingu sem lög leyfa og að hún yrði alfarið bundin skilorði. Dómari rakti að maðurinn hefði í tvígang hlotið dóm fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Í fyrra skiptið var ákærði ekki orðinn 19 ára og í seinna málinu var það metið honum til málsbóta að hann framdi brot sitt í reiðikasti sem brotaþoli vakti hjá honum.
Að þessu sinni sagði maðurinn að hann hefði eitt augnablik misst stjórn á sér, en brotaþoli hafi verið grunaður um að hafa brotið gegn dóttur ákærða fyrir tveimur árum áður. Tók dómari fram að engin nánari gögn væru fyrir hendi um meint brot en upplýst hefði verið að rannsókn málsins var hætt. Taldi dómari ekki tilefni til að lækka eða milda refsingu vegna þessa þar sem árásin átti sér stað tveimur árum eftir meint brot. Það væri þó manninum til málsbóta að hafa játað en á sama tíma væri um að ræða alvarlega líkamsárás þar sem atlagan beindist meðal annars að höfði brotaþola.
Með tilliti til sakaferils mannsins og fyrri líkamsárása taldi dómari það ekki koma til greina að skilorðsbinda refsinguna að fullu. Hann var því dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá óskilorðsbundna. Eins þarf hann að greiða brotaþola 600 þúsund krónur í miskabætur.