Lafði Judi Dench, hin 91 árs gamla stórleikkona, greinir frá hrörnandi heilsu sinni. Hún er næstum orðin blind.
Breska blaðið Express greinir frá þessu.
Dench greindist með sjónhimnurýrnun (AMD) árið 2012. Það er sjúkdómur sem hefur áhrif á miðju sjónarinnar og gerir fólki meðal annars erfitt að þekkja andlit og lesa. Þetta getur þróast hægt til að byrja með en síðan versnað hratt.
Þrátt fyrir að vera komin á tíræðisaldur er lafðin ekki hætt að leika. Á þessu ári lék hún í þremur kvikmyndum, þó að reyndar ein þeirra hafi verið stuttmynd og hinar tvær var Dench aðeins raddleikkona. En Dench greinir frá því að hún geti ekki lengur lesið handritin.
„Þetta hefur haft áhrif á mig, já. Ég get ekki lengur horft á sjónvarpið og ég þoli ekki skært ljós; þetta lítur ekki vel út. Þetta er bara leiðinlegt. Mamma var líka með þetta,“ sagði Dench nýlega í viðtali við tímaritið Yours.
Sjúkdómurinn veldur því einnig að Dench getur ekki lengur gengið ein eftir rauða dreglinum. Hún gæti auðveldlega oltið um koll og eins og flestir vita getur fólk á þessum aldri auðveldlega beinbrotnað við fall.
En Dench lætur ekki deigan síga. Það eina sem hún óttast er að verða atvinnulaus.