Sprengjuhótanir voru sendar á nokkrar ríkisstofnanir og fyrirtæki í vikunni en lögreglan telur ekki þörf á að bregðast við þeim. RÚV greinir frá því að forsætisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið hafi fengið slíkar hótanir í tölvupósti, mun pósturinn hafa verið skrifaður á ensku.
Samkvæmt heimildum DV hafa fyrirtæki einnig fengið slíkar hótanir. Staðfest er að eitt fyrirtækjanna er Advania. „Við tókum þessu alvarlega og virkjuðum okkar innri ferla og fórum í varúðarskyni yfir húsnæðið og myndavélar,“ sagði Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania við RÚV
Upplýsingafulltrúar ráðuneytanna staðfesta að sprengjusveit hafi verið kölluð út til að meta aðstæður en var það mat lögreglu að ekki þyrfti að bregðast við. Málið er til rannsóknar.