Fréttir

Stal 88 sinnum úr verslunum og sundlaug - Sótti mikið í kjúklingabringur

Mynd

Maður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir alls 88 þjófnaði og eina þjófnaðartilraun. Stal maðurinn ýmis konar vörum en þó einna oftast kjúklingabringum.

Þjófnaðirnir voru framdir á tímabilinu desember 2024 til júlí 2026.

Maðurinn stal aðallega matvörum til dæmis orkudrykkjum, samlokum og gosi þó einna helst kjúklingabringum en hann stal einnig álpappír, raftækjum, fatnaði, verkfærum, húðvörum, ilmvötnum, lego-leikföngum og fæðubótarefnum.

Allir þjófnaðirnir nema einn voru framdir í verslunum og verðmæti þess sem maðurinn stal nam samtals um 3,5 milljónum króna.

Í öllum tilfellum stal maðurinn úr verslunum nema einu þegar hann stal skóm úr skóhillu í Árbæjarlaug.

Maðurinn stal frá fjölda fyrirtækja meðal annars Elko, Krónunni, Hagkaupum, Bónus, Lyfju, 66° norður, Húsasmiðjunni, N1 og Nettó.

Í einu tilfelli stöðvuðu starfsmenn viðkomandi verslunar manninn áður en hann náði að stinga af með verkfæri sem hann hafði stungið í tösku sína. Í því tilfelli var hann þar af leiðandi ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar.

Hæsta söluverðmæti þess sem maðurinn stal í einum þjófnaði var 216.191 króna en þar var um að ræða níu ilmi sem hann stal úr verslun Hagkaupa. Lægsta söluverðmætið var hins vegar 449 krónur en það var verð álpappírs sem hann stal í verslun Krónunnar.

Skilorð

Maðurinn játaði öll 88 brot sín. Hann hefur fjórum sinnum gengist undir sektargerð hjá lögreglustjóra vegna sviptingu ökuréttar, aksturs án ökuréttar og aksturs undir áhrifum fíkniefna. Í febrúar 2024 var hann dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í átta mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið, vegna aksturs án ökuréttar og undir áhrifum fíkniefna, og sviptur ökurétti ævilangt. Maðurinn hlaut síðan í júní 2024 dóm fyrir sams konar brot en í það skipti sex og hálfs mánaðar fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna.

Í þetta skipti var við ákvörðun refsingar litið til þess að með öllum þessum þjófnuðum rauf maðurinn skilorð. Einnig var litið til játningar mannsins en á móti til þess að um fjölmörg brot hafi verið að ræða á löngu tímabili og að verðmæti þess sem maðurinn stal hafi verið um 3,5 milljónir króna.

Við hæfi þótti því að dæma manninn í 14 mánaða fangelsi fyrir þjófnaðina 88.