Fréttir

Segja mál gleraugnaverslunarinnar anga af stærra vandamáli - Litið sé á höfundaverk eins og kranavatn

Mynd
Bragi Valdimar Skúlason er formaður STEFs.

STEF, hagsmunasamtök tón- og textahöfunda á Íslandi hafa í framhaldi af frétt DV, um gleraugnaverslun sem fékk á sig kröfu fyrir notkun á höfundarréttarvarðri tónlist, sent frá sér yfirlýsingu. Segir í yfirlýsingunni að málið virðist angi af stærra vandamáli sem lýsi sér þannig að með aukinni netvæðingu sé litið svo á að höfundaverk annarra svo sem tónlist og kvikmyndir séu eins konar vatnskrani sem hægt sé að nota að vild og án þess að nokkurt leyfi sé veitt til slíks, hvað þá að greitt sé fyrir.

Yfirlýsingin er birt á Facebook-síðu STEFs í framhaldi af frétt DV um umsögn gleraugnaverslunarinnar Plusminus Optic í Smáralind um frumvarp til breytinga á höfundalögum, sem nú er til meðferðar á Alþingi og snýr að því að herða refsingar við stórfelldum brotum á höfundarrétti. Kom fram í umsögninni að versluninni hefði borist há bótakrafa vegna óheimilar notkunar á tónlist í myndskeiði á samfélagsmiðlum. Var í umsögninni lögð áhersla á að um óviljaverk hafi verið að ræða og ekki hafi verið ætlunin að hlunnfara viðkomandi listamann. Var hvatt til þess að í höfundalögum yrði gerður greinarmunur á kerfisbundnum brotum á höfundarrétti og brotum sem væru framin af gáleysi. Var einnig hvatt til þess að í lögin yrði bætt skýrari viðmiðum um bótakröfur vegna brota á höfundarrétti.

Sjá einnig: Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“

Krani

Í yfirlýsingu STEFs segir að all nokkur sams konar mál hafi komið upp undanfarin misseri.

Auðvitað geti svona nokkuð gerst af gáleysi, eins og eigendur gleraugnaverslunarinnar haldi fram:

„Það breytir því þó ekki, að gáleysi getur aldrei orðið afsökun fyrir því að fólk þekki ekki lögin í landinu, sem jafnvel hafa verið í gildi áratugum saman og í gegnum árin verið reglulega til umfjöllunar í fjölmiðlum.“

Líklegt megi telja að gáleysi sem þetta sé angi af stærra vandamáli eða nokkurs konar hugarfarsbreytingu:

„Með síaukinni netvæðingu seinni ára, þá virðist sem svo, að margir líti á tónlist, kvikmyndir og fleira í þeim dúr sem nk. „almennings-krana“, sem hver og einn geti skrúfað frá og sopið af, án þess að leita leyfis né sýna skilning á því, að á bak við hvert lag, hverja kvikmynd og hverja bók, liggur ómæld vinna einstaklinga, auk fjárútláta.“

Fullorðinn

Segir enn fremur að það eigi að vera fullorðnu fólki kunnugt, að höfundaverk heyri til eignaréttar. Þau njóti verndar samkvæmt lögum og beri að semja um opinbera notkun þeirra, ekki síst í auglýsingaskyni. En samt sé það svo, að margir líti svo á eða hagi sér þannig, að þetta hljóti bara að vera eins og vatnið í krananum:

„Vert er að hafa það í huga, að vatnið í krananum er ekki ókeypis. Ekki frekar en aðgangur að internetinu.“

Segir að lokum í yfirlýsingu STEFs að auðvitað gangi rekstraraðilum sjaldnast illt til. Það sé hins vegar ástæða til að benda auglýsendum á gagnlegar upplýsingar, varðandi notkun á höfundaréttarvarinni tónlist í auglýsingum, á heimasíðu STEFs.

Loks er hvatt til þess að leitað sé eftir leyfi og samið um greiðslu við viðkomandi höfundarréttarhafa áður en efni hans er nýtt opinberlega.