Bresk kona hefur lögsótt rútufyrirtæki sem sagði henni upp eftir að hún fékk í magann í vinnunni og var sagt upp í kjölfarið. Samstarfs kona hennar hélt að hún hefði gert á sig í rútunni.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Stephanie Bryan, frá borginni Bristol í vesturhluta Englands, var sagt upp hjá rútufyrirtækinu The Big Lemon, sem starfrækir rafknúnar rútur. Bryan hafði fengið illt í magann í vinnunni og þurft að leysa vind.
Sú sem tók við af Bryan á vaktinni, Samantha Bingham, fann gríðarlegan óþef í bílstjórarýminu. Taldi hún að Stephanie hlyti að hafa gert á sig í vinnunni. Óþefurinn var svo stækur og svo lengi í rýminu að hann fylgdi Samönthu heim. Spurði maki hennar hvort hún hefði gert á sig. Fór hún rakleiðis í sturtu og þreif starfsmannafötin sín.
„Allir þurfa að prumpa“
Samantha var ekki sátt og gekk á Stephanie með óþefinn daginn eftir. En Stephanie svaraði: „Allir þurfa að prumpa.“
Kvartaði hún líka til fyrirtækisins sem brást við með því að segja Stephanie upp störfum.
Sjá einnig:
Hvaða matur veldur verstu prumpulyktinni?
Stephanie lögsótti The Big Lemon fyrir mismunun á grundvelli fötlunar og fyrir áreitni frá öðrum starfsmanni, það er Samönthu. Sagði hún að óþefurinn væri afleiðing af veikindum hennar í þvagblöðru.
Lykt af saur en ekki þvagi
Málið fór fyrir vinnumarkaðsdómstól sem úrskurðaði fyrirtækinu í hag. Var meðal annars bent á að fyrirtækið hafi ekki einu sinni vitað af veikindum Stephanie, hvorki líkamlegum né andlegum.
„Lyktin bar keim af saur, hugsanlega vegna mikillar vindgangs sem hafði leitt til óhreinkunar. Hún tengdist ekki þvagi eða þvagleka,“ sagði Jonathan Walters, dómari í málinu.
Einnig að Samantha hafi hafi raunverulegar áhyggjur og verið í fullum rétti að láta yfirmenn sína vita af ástandinu.