Fréttir

Prófessor segir að loksins sé hægt að meta covid aðgerðirnar – Var gengið of langt?

Mynd
Karl segir að nú sé hægt að meta íslensku sóttvarnaraðgerðirnar.

Karl G. Kristinsson, prófessor emeritus og yfirlæknir á sýkla og veirufræðideild Landspítalans, segir að nú sé komið að þeim tíma að hægt sé að meta covid aðgerðirnar með hliðsjón af samanburðargögnum. Spurningin sem liggi fyrir sé hvort gengið hafi verið of langt í aðgerðum.

„Nú, nokkrum árum eftir að umfangsmiklum sóttvarnaaðgerðum vegna COVID-19 var aflétt, er tímabært að leggja mat á viðbrögð okkar við heimsfaraldrinum. Á meðan hann stóð yfir þurfti stöðugt að taka ákvarðanir við mikla óvissu. Sóttvarnaraðgerðir höfðu mikil áhrif á daglegt líf, skólastarf, atvinnulíf, ferðalög og samskipti fólks og gátu eðlilega verið upplifaðar sem mjög íþyngjandi. Enn er spurt hvort gengið hafi verið of langt,“ segir Karl í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Í dag getum við metið viðbrögðin með alþjóðlegum samanburðargögnum, svo sem Oxford COVID-19 Government Response Tracker (OxCGRT) sem Oxford háskóli heldur úti. En í þeim gagnagrunni er hægt að meta umfang sóttvarnaraðgerða á milli landa.

Bendir Karl á að þó að mikið hafi verið fjallað um einstakar aðgerðir á Íslandi þá hefur minni athygli beinst að því hvernig Ísland komi út úr samanburði við önnur lönd. Það er varðandi dánartíðni, umfang sóttvarnaraðgerða og bólusetninga. Þessi samanburður gefi athyglisverða mynd.

Lág dánartíðni

Karl reifar fyrst dánartíðnina, sem komi fram í tölum frá Efnahags og framfarastofnuninni, OECD. Þar megi sjá að Ísland komi næst best út OECD ríkja á eftir aðeins Nýja Sjálandi.

„Lægri heildardánartíðni þýðir ekki að COVID-19 hafi ekki valdið dauðsföllum. Hún sýnir hins vegar að aldursstöðluð heildardánartíðni á Íslandi var lægri árin 2020-2022 en á viðmiðunartímabilinu 2015-2019, þrátt fyrir faraldurinn,“ segir Karl. Sóttvarnaraðgerðirnar hafi dregið úr lífshættulegum sýkingum annarra sjúkdóma, svo sem pneumókokka og menigókokka.

Minni takmarkanir hér

 Samkvæmt vísitölu OxCGRT hafi takmarkandi sóttvarnaraðgerðir hér verið minni en annars staðar. Meðaltalið á covid tímanum var 30,6 af 100 sem er það lægsta af 15 viðmiðunarþjóðum. Í Bandaríkjunum var vísitalan að meðaltali 48,4 og í Ítalíu 52,3.

Sjá einnig:

Fyrsta dauðsfallið í tengslum við COVID-19 á Íslandi

„Þetta er athyglisvert í ljósi þess hversu íþyngjandi takmarkanirnar gátu verið upplifaðar hér á landi. Þær voru vissulega verulegar á köflum, en þegar allt tímabilið er skoðað voru formlegar takmarkanir á Íslandi minni að umfangi en í öllum hinum 14 löndunum í samanburðinum. Ísland beitti heldur ekki langvarandi almennum samfélagslokunum,“ bendir Karl á.

Bólusetningarnar, sem hófust 29. desember árið 2020, breyttu stöðunni. Þátttakan jókst hratt árið 2021 og í lok ársins höfðu 74,6 prósent lokið grunnbólusetningu.

Ísland komi mjög vel út

Áður en bóluefnin komu til sögunnar byggðist íslenska leiðin á að finna og einangra smit hratt, rekja tengsl og beita markvissum takmörkunum. Á örfáuum mánuðum var byggð upp gríðarmikil afkastageta til greininga. Hægt var að greina þúsundir á einum sólarhring. Þar skipti mestu samstarf Landspítalans við Íslenska erfðagreiningu, smitrakning, landamæraskimun og raðgreining erfðaefnis veirunnar.

„Enginn einn þáttur skýrir niðurstöðuna. Heilbrigðiskerfi, hegðun almennings, tímasetning faraldursbylgna, greiningar, smitrakning, sóttvarnaaðgerðir og síðar bólusetningar skiptu öll máli,“ segir Karl að lokum. „Þegar reynsla Íslands er metin eftir á með samanburðarhæfum alþjóðlegum gögnum kemur Ísland mjög vel út úr COVID-19-faraldrinum: þróun heildardánartíðni var hagstæð, umfang formlegra takmarkana minna en í samanburðarlöndunum og þátttaka í bólusetningum mikil. Þessar niðurstöður sýna ekki hvaða einstöku aðgerðir skiluðu mestum árangri, en þær eru mikilvægur hluti af gagnreyndu uppgjöri okkar við faraldurinn.“