Fréttir

Losum um hnútinn: 163 aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Mynd
Viðurkenningarhafar Jafnvægisvogarinnar 2026. Mynd: Silla Páls.

Jafnvægisvogin veitti á miðvikudag 163 fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum viðurkenningu fyrir kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum. Það er 27,3% fjölgun milli ára. Þrátt fyrir framfarir eru konur aðeins 21,3% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi og af þeim sem ráðnir voru í framkvæmdastjórastöður árið 2025 voru 71% karlar.

Viðurkenningar Jafnvægisvogarinnar eru veittar þeim sem hafa náð því viðmiði að hlutfall hvors kyns í framkvæmdastjórn sé að minnsta kosti 40%. Markmið verkefnisins er að ná 40/60 kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum íslenskra fyrirtækja, eins og segir í fréttatilkynningu.

Yfirskrift viðurkenningarhátíðarinnar í ár var Losum um hnútinn. Hún er jafnframt yfirskrift herferðar Jafnvægisvogarinnar sem hvetur stjórnendur, stjórnir og eigendur til að taka virka afstöðu með jafnrétti og fylgja henni eftir með ákvörðunum.

„Jafnrétti er ákvörðun. Viðurkenningarhafarnir sýna að það er hægt að ná jafnvægi þegar stjórnendur setja skýr markmið og fylgja þeim eftir. Við viljum sjá fleiri fyrirtæki taka sama skref. Næsta ráðning eða næsta skipun er tækifæri til að losa um hnútinn og nýta betur þann mannauð sem við höfum úr að velja“ segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarformaður Jafnvægisvogarráðs.

Karlar 71% nýráðinna framkvæmdastjóra

Samkvæmt mælaborði Jafnvægisvogarinnar eru konur 21,3% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi. Og ef horft er til þeirra sem ráðnir voru í framkvæmdastjórastöður árið 2025 í 300 stærstu fyrirtækjum landsins þá voru 71% karlar. Tölurnar undirstrika mikilvægi þess að stjórnir og stjórnendur horfi til alls þess hæfileikafólks sem stendur til boða þegar ráðið er í stjórnunarstöður.

Fjölgun í framkvæmdastjórnum en fáar konur í efstu stöðum

Samkvæmt nýjustu tölum GemmaQ eru konur aðeins 5 af 27 forstjórum félaga á Aðalmarkaði íslensku kauphallarinnar, eða 18,5%. Aðeins ein kona gegnir stöðu stjórnarformanns, sem jafngildir 3,7%.

Hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum félaga á Aðalmarkaði hefur hækkað úr 33,3% í 35,4% milli ára. Þrátt fyrir þá breytingu eru enn fimm félög með enga konu í framkvæmdastjórn. Á sama tíma hefur hlutfall kvenna í stjórnum lækkað úr 43,0% í 40,9%.

Fleiri konur við borðið en fáar við borðsendann

Samanburður við árið 2007 sýnir miklar breytingar. Þá voru konur 13,8% stjórnarmanna og 11,7% í framkvæmdastjórnum félaga á Aðalmarkaði. Engin kona var forstjóri og konur voru 4,5% stjórnarformanna. Framfarirnar hafa því verið ólíkar eftir stjórnunarstigum.

„Það er ástæða til að fagna framförum, en við þurfum líka að horfa á hvar breytingarnar ganga hægt. Þegar aðeins 5 af 27 forstjórum eru konur og aðeins ein kona er stjórnarformaður er ljóst að við eigum enn talsvert í land. Við hvetjum stjórnir og stjórnendur til að víkka leitina og spyrja sig hvort einhver sé utan þeirra hefðbundna hóps sem gæti gegnt stöðunni. Jafnrétti er ákvörðun og næsta ráðning er tækifæri,“ segir Erla Ósk.

Jafnvægisvogin hvetur fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir til að undirrita viljayfirlýsingu verkefnisins og vinna markvisst að kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum.

Jafnrétti er ákvörðun. Losum um hnútinn.

Viljayfirlýsing og upplýsingar um þátttöku má finna hér

Viðurkenningarhafar Jafnvægisvogar 2026

163 fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir í stafrófsröð:

A4

AGR Dynamics

Akraneskaupstaður

Akureyrarbær

Alfreð

APRÓ

Arkís

Artasan

Atlantsolía

Atmonia 

atNorth

AwareGo

Ásar

ÁTVR / Vínbúðin

Bakkinn vöruhótel

Bananar

Bavaria

Björgun Sement

BL 

Bláa Lónið

Borgarbyggð

Borgarleikhús

Brandenburg

Bústólpi 

Carbfix

Coca-Cola Europacific Partners Ísland

Coripharma

Courtyard by Marriott Reykjavík Keflavík Airport

COWI á Íslandi

Creditinfo

Dagar hf

Deloitte 

Distica

dk hugbúnaður

Dynja 

EFLA hf

Eimskip

Elkem Ísland

ELKO

Fangelsismálastofnun

Ferðaskrifstofan Icelandia

Festi

Félagsbústaðir

Fiskistofa

Five Degrees 

Fjallabyggð

Fjársýsla ríkisins

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir

Garðabær

GB mokstur

Geocamp Iceland

GG Verk 

Grímsnes- og Grafningshreppur

Guðmundur Arason 

Hafnarfjarðarbær

Harpa

Háskóli Íslands

Háskólinn á Akureyri

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Heilsa

Heimilistæki

Helvítis 

Hirzlan 

Hopp

Hornsteinn

Hreint 

HS Orka

Húnabyggð

Húnaþing Vestra

Hvíta húsið

Iceland Hotel Collection by Berjaya

IKEA

Inkasso 

Intellecta

Isavia ohf

Íslandsbanki

Íslandshótel

Íslandsstofa

Íslenska Gámafélagið

ÍSOR

Ívera

Kolibri

Krónan

Kvan

Land og skógur

Landhelgisgæsla Íslands

Landsnet

Landsvirkjun

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

Ljósleiðarinn

Lota

LSR

Lyfja

Lyfjaval

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Matís ohf

Maven 

Menningarfélag Akureyrar

Midgard Adventure

Miðbæjarhótel/Center Hotels 

Mosfellsbær

Motus

Múlaþing

Nasdaq Iceland

Náttúruverndarstofnun

Nordic Office of Architecture 

Norðurál 

Norðurorka hf.

Nova

Nói Síríus hf.

Olís 

Orkan IS

Orkusalan

Orkuveitan

Orkuvirki

Ósar - lífæð heilbrigðis hf.

Petmark 

Pgv framtíðarform 

Pipar/TBWA

Pixel

Prentmet Oddi 

Rafal 

Rangárþing eystra

Rarik

Regnboginn leikskóli

Reir verk

Rekstrarvörur 

Reykjavíkurborg

Ríkislögreglustjóri

RÚV ohf.

Sagafilm

Samkaup hf.

Seðlabanki Íslands

Sjóvá

Skatturinn

Skógræktarfélag Reykjavíkur

Snæfellsbær

STOÐ

Strætó bs

Sveitarfélagið Árborg

Sveitarfélagið Stykkishólmur

Sveitarfélagið Ölfus

Sýn hf.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Taktikal 

Te og kaffi

Tixly

Travel Connect

Tryggja

TVG-Zimsen

Umhverfis- og orkustofnun

Útlendingastofnun

Vegagerðin

Veitur

Verzlunarskóli Íslands

Verbúðin 66 

Verkís

Vesturbyggð

Vélsmiðja Suðurlands 

Vinnueftirlitið

Vistor

VÍS

Wise lausnir