Fréttir

Krefjast óháðrar úttektar á Kársnesskólaklúðrinu og segja leyndarhyggju svífa yfir vötnum

Mynd
Framkvæmdir við nýtt húsnæði fyrir grunn- og leikskóla á Kársnesi, sem nú er lokið, hafa reynst Kópavogsbæ óþægur ljár í þúfu. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Á fundi bæjarráðs í Kópavogi í gær voru teknar fyrir umdeildar framkvæmdir við nýtt húsnæði fyrir grunn- og leikskóla á Kársnesi. Eins og kunnugt er þurfti bærinn að slíta samningum við verktakafyrirtækið sem tók framkvæmdirnar upphaflega að sér og kostnaður við framkvæmdirnar er kominn töluvert fram úr áætlun, er raunar orðinn nærr tvöfalt hærri sé miðað við nafnverð. Hins vegar tókst að ljúka framkvæmdunum og bærinn mun gera bótakröfu á hendur áðurnefndu verktakafyrirtæki. Á fundinum í gær gerðu fulltrúar minnihlutans alvarlegar athugasemdir við meðferð meirihlutans á málinu. Einn þeirra fór fram á óháða úttekt og annar sagði of mikla leynd hvíla yfir málinu og að misvísandi upplýsingar hefðu verið veittar kjörnum fulltrúum. Fulltrúar meirihlutans segja hins vegar um ómálefnalegar upphrópanir að ræða af hálfu minnihlutans.

Til að rekja sögu málsins í sem stystu máli þá var ákveðið fyrir um áratug að ráðast í framkvæmdir við nýtt skólahúsnæði á Kárnesi eftir að rakaskemmdir og mygla fundust í þáverandi húsnæði Kársnesskóla. Kópavogsbær réðist í útboð og á grundvelli þess var árið 2021 samið við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher, en tilboðið nam 3,2 milljörðum króna. Vorið 2023 var samingum við fyrirtækið hins vegar rift vegna tafa, vanefnda og galla á verkinu en meðal annars höfðu fundist raki í útveggjum og mygla í timbri.

Verkinu var síðan lokið af hálfu annars verktaka og skólinn tók til starfa í nýju húsnæði á síðasta ári, um þremur árum síðar en stefnt hafði verið að, undir heitinu Barnaskóli Kársness en þar er rekinn leikskóli og grunnskóli fyrir nemendur í 1.-4. bekk.

Bætur

Gerðardómur úrskurðaði að riftun á samningi við Rizzani de Eccher hafi verið lögleg og á bæjarráðsfundi í gær var bótakrafa bæjarins á hendur fyrirtækinu kynnt.

Í minnisblaði frá lögmannsstofunni Landslög, sem annast málið fyrir hönd bæjarins, kemur fram að fyrirtækið hafi glímt við fjárhagserfiðleika og hafi verið í greiðslustöðvun á Ítalíu en hafi sótt um sérstakt úrræði sem sé ein tegund fjárhagslegrar endurskipulagningar, til að koma í veg fyrir gjaldþrot.

Kópavogsbær mun krefjast bóta frá Rizzani de Eccher vegna galla á verkinu, kostnaðar vegna verktakaskipta og vegna ýmis annars kostnaðar. Heildarkrafan nemur um 3,9 milljörðum króna.

Heildarkostnaður vegna framkvæmdanna er að núvirði orðinn 8,7 milljarðar króna. Upphafleg kostnaðaráætlun árið 2020 nam 4,8 milljörðum króna sem að núvirði er um 6,7 milljarðar. Sé miðað við nafnverð hefur kostnaðurinn því nærri tvöfaldast frá upphaflegri áætlun en sé miðað við raunverð er hann um tveimur milljörðum hærri. Samningurinn við Rizzani de Eccher nam eins og áður segir 3,2 milljörðum en í tilkynningu frá Kópavogsbæ er áréttað að ýmis kostnaður hafi ekki verið hluti af þeim samningi, t.d. búnaður fyrir skólann, hönnun, byggingarstjórn o.fl.

Leynd og úttekt

Í þessari tilkynningu er lögð áhersla á að Kópavogsbær muni sækja fullar heimtur vegna vanefnda Rizzani de Eccher.

Í bókunum fulltrúa minnihlutans á fundi bæjarráðs í gær var hins vegar lýst yfir töluverðri óánægju.

Einar Jóhannes Guðnason oddviti Miðflokksins og fulltrúi hans í bæjarráði sagði í sinni bókun að hann setti spurningamerki við upplýsingagjöf meirihlutans og bæjarins til kjörinna fulltrúa. Misræmi í upplýsingagjöf milli deilda vekti ekki upp mikið traust og sagðist Einar upplifa ákveðna leyndarhyggju yfir staðreyndum málsins. Starfsmenn bæjarins og meirihlutinn gætu ekki falið sig á bakvið hagsmuni bæjarins sem ástæðu þess að kjörnir fulltrúar fengju ekki aðgang að heildarmyndinni.

Hvað Einar á við með misræmi í upplýsingagjöf milli deilda er ekki tíundað nánar í bókun hans.

Í bókun Maríu Ellenar Steingrímsdóttur, sem er oddviti Viðreisnar og áheyrnarfulltrúi í bæjarráði, kemur fram að fullt tilefni sé til þess að ráðast í óháða úttekt á framkvæmdunum, allt frá undirbúningi til verkloka. Um sé að ræða gríðarlega fjármuni og það þurfi að fara yfir hvað fór úrskeiðis, hvers vegna og hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir það. Það sé ekki ástæða til að bíða með slíka úttekt nú þegar kostnaðaruppgjör liggi fyrir. Það sé ekki síður mikilvægt að skoða hvernig bærinn sjálfur stóð að undirbúningi, ákvarðanatöku, eftirliti og stjórnun verkefnisins:

„Bæjarbúar eiga rétt á svörum um hvernig svo fór að ein umfangsmesta framkvæmd Kópavogsbæjar endaði með þessum hætti. Það er ekki nóg að sækja rétt bæjarins gagnvart verktakanum,“ segir María Ellen.

Upphlaup

Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í bæjarráði sagðist í sinni bókun harma þann gríðarlega kostnað sem fallið hefði á bæjarsjóð vegna mistaka í framkvæmdum vegna Barnaskóla Kársness og riftunar á verksamningi í kjölfarið. Hægt væri að fullyrða að um dýrasta grunnskóla landsins væri að ræða og væri áfallinn kostnaður löngu orðinn margfeldi af upphaflegri kostnaðaráætlun. Veruleg óvissa væri um hvort kostnaður myndi endurheimtast frá verktakanum að óbreyttu jafnvel þótt Kópavogsbær bæri sigur úr býtum í yfirstandandi málaferlum, enda lægi fyrir að Rizzani de Eccher væri í verulegum fjárhagserfiðleikum og hafi verið í greiðslustöðvun í um þrjú ár.

Jónas tók undir með Einari um að framkomnar upplýsingar dygðu ekki til að varpa heildarmynd á málið. Brýnt væri að fara yfir yfir málið í heild sinni og draga lærdóm af því um hvað hafi farið úrskeiðis, hver raunverulegur kostnaður bæjarsjóðs hafi verið, hvort ákvarðanataka í kjölfar riftunar hafi verið forsvaranleg og hvaða úrbóta þyrfti að grípa til svo að svona stórslys í framkvæmdum bæjarins ætti sér ekki aftur stað.

Fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, svöruðu hins vegar minnihlutanum fullum hálsi, í sinni bókun

Það væri ekki rétt að kostnaðurinn væri orðinn margfeldi á við upphaflegar kostnaðaráætlanir.

Framkvæmdin hafi verið boðin út í samræmi við lög um opinber innkaup. Rizzani de Eccher hafi átt lægsta gilda tilboðið og Kópavogsbæ hafi borið að fylgja þeim reglum sem giltu um val á verktaka í opinberum útboðum.

Þegar ljóst hafi verið, vorið 2023, að komið hafi verið í óefni hafi samningnum verið rift. Verulegar tafir, alvarlegir ágallar og ítrekaðar vanefndir verktakans hafi orðið til þess að bæjaryfirvöld brugðust við með þessum hætti. Sú ákvörðun hafi verið bæði nauðsynleg og rétt, enda hafi gerðardómur þegar staðfest að riftunin hafi verið lögmæt. Riftunin hafi verið samþykkt af öllum bæjarfulltrúum, úr meiri- og minnihluta, utan eins. Ákvörðunin um riftun hafi sannað sig enda sé í dag risinn glæsilegur skóli.

Segir meirihlutinn að lokum að tilraunir til þess að gera pólitískan ágreining úr máli þar sem bæjaryfirvöld hafi að bregðast við alvarlegum vanefndum verktaka séu ekki málefnalegar. Sjálfsagt sé að fara yfir það sem betur hefði mátt fara en slík yfirferð eigi að byggja á staðreyndum en ekki pólitískum upphrópunum. Hefði ekki verið gripið til aðgerða væri alls óvíst að skólinn væri risinn.