Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, er allt annað en sáttur við ákvörðun Jóns Gnarr um að segja skilið við Viðreisn en sitja áfram á Alþingi sem óháður þingmaður.
Kristján telur að þingmenn sem yfirgefa flokk sinn eigi jafnframt að láta af þingmennsku. Hann gerir málið að umtalsefni í harðorðri færslu á Facebook.
„Hvaða skrípaleikur er þetta á Alþingi?“ spyr hann og lætur síðan gamminn geisa.
„Ef hann hættir í flokknum, þá hættir hann og fer af Alþingi. Hann komst á þing vegna þess að hann var kjörinn til þess og flokkurinn valdi hann.“
Kristján segir nauðsynlegt að skerpa á reglum um störf þingmanna og þær skyldur sem fylgja því að vera kjörinn á Alþingi.
„Meira helvítis ruglið þarna. Eigum við landsmenn að bera virðingu fyrir þessum vinnubrögðum?“ spyr hann að lokum.
Færsla Kristjáns hefur vakið nokkur viðbrögð og eru ekki allir sammála honum. Einn þeirra sem tekur til máls segir ákvörðun Jóns þvert á móti virðingarverða, enda geti hann nú barist fyrir þeim málefnum sem honum séu hugleikin án þess að þurfa að fylgja flokkslínu.
Ákvörðun Jóns vakti talsverða athygli í gær en hann útskýrði hana nánar í Kastljósi í gærkvöldi. Þar sagði hann að lengi hefði skort skýra forystu innan þingflokks Viðreisnar og gagnrýndi meðal annars ákvarðanafælni og klíkumyndun.
„Ég vil taka það skýrt fram að ég hef ekki brugðist. Ég hef staðið mína pligt en mér finnst forysta flokksins hafa brugðist mér,“ sagði Jón.
Hann tók þó fram að honum þætti enn vænt um Viðreisn og hygðist áfram styðja ríkisstjórnina. Hann ætlar því að sitja áfram á Alþingi sem óháður þingmaður.