Fréttir

Ferðamenn segja frá vonbrigðum sínum á Íslandi – „Ég myndi líklega ekki gera það aftur“

Mynd
Það er ekki alltaf hægt að gera öllum til geðs.

Íslenskar pylsur, þekktir ferðamannastaðir og sundlaug úti í náttúrunni eru meðal þess sem olli erlendum ferðamönnum vonbrigðum í heimsókn þeirra til Íslands.

Fjörugar umræður hafa skapast í Facebook-hópnum VISIT ICELAND – Travel like a local! eftir að einn meðlimur hópsins velti upp þeirri spurningu hvað hefði valdið ferðamönnum mestum vonbrigðum á Íslandi.

„Hvað er það eina á Íslandi sem þið hélduð að yrði alveg frábært en reyndist síðan vera vonbrigði?“ spurði viðkomandi og sagðist sjálfur aldrei hafa komið til landsins en vilja heyra bæði það góða og slæma.

Svörin létu ekki á sér standa og voru nokkuð fjölbreytt.

Skildi ekki allt þetta umstang í kringum pylsurnar

Einn ferðamaður nefndi íslensku pylsurnar, sem hafa lengi notið mikilla vinsælda meðal erlendra gesta.

„Pylsurnar. Jú, þær voru alveg ágætar, en ég skildi ekki allt þetta umstang í kringum þær. Þær voru ekkert sérstaklega frábrugðnar öðrum pylsum sem ég hef borðað,“ skrifaði einn ferðamaður.

Hann tók þó fram að allt annað í ferðinni hefði verið frábært.

Annar ferðamaður nefndi Seljavallalaug, sem er vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna á Suðurlandi.

„Mér fannst þetta persónulega spennandi upplifun, en ég verð að viðurkenna að vatnið var frekar kalt, allt þakið þörungum og ferðamenn höfðu gengið illa um búningsklefana,“ skrifaði viðkomandi.

Ferðamaðurinn, kona, sagði jafnframt að gluggar hefðu verið á búningsaðstöðunni og að aðrir ferðamenn hefðu kíkt inn á meðan þau skiptu um föt.

„Ég er fegin að hafa prófað þetta einu sinni en myndi líklega ekki gera það aftur.“

Demantafjaran en engir „demantar“

Fleiri nefndu náttúruperlur sem ekki stóðust alveg væntingar þeirra. Þar á meðal var hin svokallaða Demantafjara við Jökulsárlón, sem er þekkt fyrir glitrandi ísjaka sem minna helst á demanta í svörtum sandinum.

Nokkrir ferðamenn sögðust hafa komið þangað þegar engan ís var að sjá á ströndinni.

„Demantafjaran, því það var enginn ís þar daginn sem við komum,“ skrifaði einn á meðan aðrir nefndu hinar ýmsu sýningar og söfn.

Veðrið ræður ferðinni

Veðrið kom einnig til tals og bentu nokkrir ferðamenn á að ómögulegt væri að skipuleggja Íslandsferð niður í minnstu smáatriði.

Einn þeirra sagði að fólk gæti skipulagt hvað sem það vildi en að veðrið myndi á endanum ráða því hvað hægt væri að gera.

Aðrir bentu á að íslenskir vegir hefðu reynst erfiðari yfirferðar en þeir höfðu búist við, sérstaklega einbreiðar brýr og einbreið jarðgöng.

Þrátt fyrir þessi dæmi voru fjölmargir sem sögðust ekki hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með Íslandsferðina.

„Ekkert, í rauninni. Okkur líkaði sumt betur en annað, en ekkert olli okkur vonbrigðum,“ skrifaði ein kona

Annar ferðamaður tók í sama streng og sagði allt hafa farið fram úr væntingum.

„Allt fór fram úr mínum væntingum. Ótrúleg ferð,“ skrifaði viðkomandi.