Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, hefur tjáð sig eftir að greint var frá því að Jón Gnarr hefði ákveðið að segja skilið við þingflokkinn.
„Mér þykir ofboðslega vænt um Jón Gnarr og það breytist ekki þótt hann hafi nú ákveðið að starfa utan þingflokks Viðreisnar,” segir Þorgerður Katrín í færslu sem hún birti á Facebook.
Brotthvarf Jóns kemur mörgum á óvart en greint hefur verið frá því að hann muni áfram styðja mál ríkisstjórnarinnar og áfram sitja í nefndum. Pawel Bartoszek, þingflokksformaður flokksins, viðurkenndi þó í samtali við Vísi að brotthvarf Jóns væri högg fyrir þingflokkinn.
Sjá einnig: Jón Gnarr segist bera skylda til að fylgja sannfæringu sinni - „Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg“
Þorgerður Katrín segir að ekki hafi borið skugga á samstarf hennar og Jóns.
„Við Jón höfum átt gott samstarf, oft hlegið mikið og við deilum áfram mikilvægum gildum og framtíðarsýn. Til dæmis því sem stendur á þessari geggjuðu derhúfu hans,” segir hún og birtir skemmtilega mynd af þeim saman.
„Ég hefði auðvitað kosið að hafa Jón áfram í þingflokknum. En ég virði ákvörðun hans og þykir vænt um að hann ætli áfram að styðja ríkisstjórnina og þau verkefni sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Mér þykir líka vænt um að hann haldi áfram í Viðreisn og hann er að sjálfsögðu alltaf velkominn aftur í þingflokkinn okkar. Stjórnmál snúast um fólk. Og þótt leiðir skilji á einum vettvangi þýðir það ekki að vináttan geri það líka. Takk fyrir samstarfið, kæri Jón.“