Fréttir

Þetta var Jón Gnarr ósáttur við

Mynd
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokknum í dag.

Jón Gnarr ræddi nú rétt í þessu við RÚV um úrsögn sína úr þingflokknum. Málefni barna í flóknum vanda komi þar við sögu. Það er að þau hafi ekki verið í næglega miklum forgangi.

„Ég kem inn í þetta samstarf með ákveðnar væntingar um ákveðnar aðgerðir og þá sérstaklega í málefnum barna í flóknum vanda, alvarlegum vanda. Ég hef beitt mér mjög persónulega í því. Ég vildi að það væri ofar á forgangslista þingflokksins og ég hef viljað fá það framar, ofar, á forgangslistann en það hefur kannski ekki verið nægilega ofarlega finnst mér. Frelsismál sem eru mér mjög kær, einstaklingsfrelsi og athafnafrelsi, ég er ósáttur við það,“ sagði Jón.

Honum hafi þó liðið vel í samstarfinu og sé stoltur af ríkisstjórninni. Ákvörðunin hafi verið erfið.

„Mér finnst algjör heiður og forréttindi að fá að vera hluti af þessari ríkisstjórn af því að mér finnst hún vera að gera sögulega hluti. Það er með glerbrot í hjarta sem ég tek þessa ákvörðun og ég get ekki vikist undan henni,“ sagði Jón sem mun reifa ástæðurnar betur í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni klukkan 16:00. Þetta hafi verið eina leiðin fyrir hann, að segja sig úr þingflokknum.

„Ég gefst ekki upp. Ég klára það sem ég byrja á og fylgi því eftir sem ég trúi. Ákvarðanir sem ég tek: ég fylgi þeim eftir. Mér leiðist líka hálfkák. Einhver hefði kannski tekið þá ákvörðun að hafa hægt um sig og þegja, svo einn daginn væri þetta búið og láta sig þá hverfa. Ég er ekki þannig maður,“ sagði Jón.