Ólafur Margeirsson hagfræðingur segir að það sé röng lýsing á fasteignamarkaðnum að tala um „mikið umframboð“ þar sem enn sé skortur á litlum leiguíbúðum, stórar söluíbúðir breyti þar litlu.
Í grein á Vísi vísar Ólafur í orð Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um áform Ragnars Þórs Ingólfssonar félags- og húsnæðismálaráðherra um leigubremsu. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á húsaleigulögum þar sem meðal annars er komið á svokallaðri leigubremsu. Leigubremsa þýðir að hækkun á leiguverði má aldrei verða meiri en hækkun á vísitölu neysluverðs. Ef að leigusali ætlar að hækka leiguna reglulega á leigutímanum þarf það að koma fram í leigusamningnum og verður bannað að hækka leiguna umfram það.
Sjá einnig: Ásgeir ekki hrifinn:„Náttúrulega bara augljóslega mjög heimskuleg“
Seðlabankastjóri hefur sagt að verðstýring væri ekki lausn á skortinum heldur væri það aukið framboð. Ólafur segir að framboðið þurfi að vera af réttu tagi þar sem vandinn í dag sé misræmi milli þess sem er verið að byggja og það sem fólk þarf.
„Ímyndum okkur kaupmann sem telur að skortur sé á bílum á Íslandi. Hann ákveður að mæta eftirspurninni með því að flytja inn Ferrari-sportbíla. Fáir þeirra seljast. Kaupmaðurinn heldur því þá fram að óseldu sportbílarnir sanni að hann hafi haft rangt fyrir sér um skortinn: ef skortur hefði verið á bílum hefði hann jú selt alla sportbílana!,“ segir Ólafur.
„Í raun var skorturinn á minni og ódýrari bílum en Ferrari, og af þeim var jafn lítið til og áður. Óseldar, stórar og dýrar nýjar söluíbúðir segja á sama hátt lítið um framboð af litlum íbúðum til kaups og leigu.“
Lýsingin getur valdið skaða
Það sem hefur verið byggt selst ekki þar sem það er of stórt. Þar að auki sé umframboðið líklega tímabundið.
„Samkvæmt talningu HMS frá því í september eru 6.216 íbúðir í byggingu, 11% færri en fyrir sex mánuðum. Aðeins hefur verið byrjað á 772 frá því í mars, sem er það minnsta síðan stofnunin hóf talningar. Verktakar sem sitja uppi með óseldar eignir virðast vera farnir að leggja árar í bát og HMS hefur lækkað spá sína um fullgerðar íbúðir árið 2027 í 2.100-2.600, úr 2.800-3.700,“ segir Ólafur. Lýsingin um að það sé mikið umframboð geti valdið skaða:
„Hún gefur til kynna að nóg sé til af húsnæði á sama tíma og of lítið er reist af litlum íbúðum, framkvæmdum fer fækkandi og um 7.000 umsækjendur eru á biðlistum eftir leiguíbúðum utan markaðsleigu, samkvæmt HMS. Og þegar ekki er nægt byggt af litlum íbúðum helst leiguverð uppi og með því verðbólga.“
Lífeyrissjóðir ættu að byggja
Svarið um hverjir eigi að byggja litlar leiguíbúðir sé einfalt, það séu langtímafjárfestar á borð við lífeyrissjóðina.
„Verktaki sem byggir til að selja þarf kaupendur með eigið fé og lánshæfi þegar íbúðin er tilbúin, og þeim fer fækkandi eins og þróun kaupsamninga sýnir (12,5% færri í júlí en ári fyrr, samkvæmt HMS). Lífeyrissjóður sem byggir til útleigu þarf leigjendur og af þeim er nóg: um 21.500 nýir leigusamningar voru skráðir árið 2025, ca. 17% fleiri en árið áður, samkvæmt HMS. Lífeyrissjóðurinn getur átt íbúðina í áratugi og haft af henni jafnar leigutekjur allan tímann,“ segir Ólafur. Þannig sé hægt að lækka vexti.
„Langtímafjárfestar ættu því að byggja, eiga og leigja út litlar íbúðir, undir 80fm, á frjálsum leigumarkaði, þ.e. einmitt þá stærð sem HMS taldi að vantaði. Það myndi auka framboð af því húsnæði sem skortur er á og halda aftur af leiguverði, sem aftur dregur