Fréttir

Minnast hins litríka Hafnfirðings Sigga Brynjólfssonar – „Svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga“

Mynd
Siggi setti mikinn svip á miðbæ Hafnarfjarðar. Myndir/Facebook

Margrét Lilja Vilmundardóttir minnist Sigurðar Brynjólfssonar sem lést fyrir skemmstu. Sigurður, eða Siggi, eins og hann var kallaður var litríkur karakter í miðbæ Hafnarfjarðar og fastur gestur á leikjum FH.

„Það var skrítið og erfitt að kveðja elsku Sigurð Brynjólfsson, Sigga, hinstu kveðju en hann var mikill vinur okkar allra sem störfum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Siggi var svo dýrmætur og fallegur fasti í okkar lífi. Alltaf einhvernveginn nálægur, það var svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga á leið sinni til eða frá heimili sínu,“ segir séra Margrét Lilja Vilmundardóttir í færslu Fríkirkjunnar í Hafnarfirði í dag.

Sigurður lést þann 30. September síðastliðinn, 78 ára að aldri. Hann var áberandi persóna í Hafnarfirði og góðvinur nágranna sinna í Fríkirkjunni.

„Það þurfti ekki meira til en bara eitt lítið innlit frá Sigga á skrifstofurnar okkar hér hinum megin við götuna og dagurinn varð betri,“ segir í færslunni. „Stundum var hann bara rétt aðeins að reka inni nefið -athuga hvernig við hefðum það. Ekkert alltaf með orðum...enda komst ég að því að orð eru furðu óþörf...allavega stundum ofmetin...það var ekki erfitt að sjá einlægnina, hlýjuna og glettnina sem fylgdi honum. Aðra daga var það örstutt spjall á fallega rauða bekknum okkar hér fyrir neðan kirkjuna, sem hann einmitt vígði í október á síðasta ári með orðunum „áfram FH“ og „kirkjan okkar er í góðum höndum“. Mér þótti vænt um það.“

Mynd
Sigurður og séra Einar Eyjólfsson á bekknum við Fríkirkjuna. Mynd/Facebook

Óhætt sé að segja að kynnin hafi haft meiri áhrif en þau gerðu sér grein fyrir. Það komi fyrir að maður kynnist fólki sem gefi meira af sér en það tekur til sín. Oftast án þess að það sé að reyna.

„Siggi var ekkert að reyna. Það var engin tilgerð í honum. Hann var löngu búin að átta sig á því að það er bara best að vera maður sjálfur,“ segir í færslunni. „Siggi var litríkur karakter sem fór ótroðnar slóðir og batt ekki bagga sína sömu hnútum og aðrir. Ég held að við getum öll verið sammála um það að lífið væri litlaust ef við værum öll eins - við þökkum fyrir alla liti lífsins, við þökkum fyrir Sigga og allt það fallega sem hann gaf okkur með lífi sínu.  Megi góður Guð blessa minningu elsku Sigga.“