Fréttir

Mikil reiði meðal íbúa eftir ummæli Orra – „Við viljum þetta ALLS EKKI“

Mynd
Íbúar á Völlunum eru ekki sáttir með svör Orra í Morgunblaðinu.

Ólga er á meðal íbúa í Vallahverfinu í Hafnarfirði eftir viðtal við Orra Björnsson, formanns bæjarráðs eftir hitafund um nýja smáhýsabyggð fyrir tímabundið verkafólk. Sagði Orri að áætlanirnar yrðu „stilltar af.“

Eins og DV greindi frá 24. september síðastliðinn er mikil kergja á meðal íbúa á Völlunum vegna áætlana um uppbyggingu 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu í hverfinu. Um er að ræða samkomulag Hafnarfjarðarbæjar við vélagið Styrkás um 130 húseiningar sem ætlaðar eru fyrir starfsfólk í tímabundinni vinnu.

Settur var á fót undirskriftalisti gegn áætlununum sem hratt hefur safnast á. Eru í dag um þrjú þúsund undirskriftir á listanum.

Áformin „stillt af“

Íbúafundur var haldinn um málið á þriðjudag í samkomusal Haukahússins þar sem fulltrúar bæjarins sátu fyrir svörum um málið. Húsfyllir var á fundinum.

Í viðtali við Morgunblaðið var Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður bæjarráðs, spurður um hvernig brugðist yrði við því sem fram kom á fundinum. Sagðist hann vera ánægður með mætinguna á fundinn og áhuga íbúa á málinu.

Bæjarstjórn myndi setjast niður með Styrkási og stilla samningana af miðað við það sem fram hafi komið á fundinum. Sagði hann að ekki allir hefðu verið á móti framkvæmdunum, sumir hefðu verið að spyrja og fá upplýsingar um hvað þetta myndi þýða. Skýra þyrfti óskýrt orðalag í samningunum með tilliti til ábendinga. Það muni taka einhverjar vikur en síðan taki við deiliskipulagsvinna.

Mikil reiði

En ummæli Orra hafa fallið í grýttan jarðveg hjá íbúum eins og sést í umræðum í hverfisgrúbbum á Facebook.

Sjá einnig:

Risauppbygging á Völlunum í Hafnarfirði fellur í grýttan jarðveg – „Það verður erfitt að losa sig héðan“

„Eru íbúar að biðja um að samningnum verði breytt eða að fallið verði frá verkefninu? Ég held að Orri hafi eitthvað misskilið mótmæli íbúa,“ segir ein kona og vísar í viðtalið í Morgunblaðinu.

„Meira bullið! Við þurfum enga hrútskýringu á því hvað þessi samningur þýðir. Finnst svörin tala niður til íbúa eins og við séum bara ekki alveg að skilja. Það er ekkert óskýrt og frekar augljóst að fólk vill þetta ekki,“ segir önnur.

Hætta strax eða íbúakosning

Bent er á að þarna nálægt eigi að rísa íþróttahús með fullt af börnum og tilheyrandi bílaumferð.

„Hvernig getur einn maður verið svona veruleikafirrtur?? Það var ENGINN að mæta á fundinn því þeir höfðu áhuga á ÞESSU SKÍTA VERKEFNI!!! Við vorum þarna til að MÓTMÆLA ÞESSU HELVÍTIS RUGLI!!!!! Það á ekki að bitna á okkur þótt bærinn sé illa rekinn og vanti quick fix,“ segir ein kona sem er augljóslega heitt í hamsi.

„Fjandinn hafi það .... það heyrðu allir og sáu á fundinum að fólk vill þetta ALLS EKKI, það eru bara tveir valkostir annað hvort að hætta við þetta strax eða íbúakosningu,“ segir önnur.

„Ég verð óð við að lesa hvað Orri segir þarna. Skilur hann og aðrir bæjarfulltrúar ekki að við viljum þetta ekki, ekki stórt hverfi, ekki lítið, ekki með e.h. breytingum. Það er stór undarlegur fjandi að þegar bæjarstjórn tekur við að útdeila allskonar eins þau eigi landið og miðin prívat og persónulega,“ segir sú þriðja.