Fréttir

Meintur flugdólgur segir farþega hafa ráðist á sig – „Ég hélt hann ætlaði að nauðga mér“

Mynd
Rétt fyrir upphaf aðalmeðferðar málsins. Mynd: DV/KSJ

Aðalmeðferð er hafin í Héraðsdómi Reykjaness yfir manni sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum til Keflavíkur, rétt fyrir lok árs 2023. Maðurinn neitar sök.

Ákæruliðir eru tveir, annars vegar er maðurinn ákærður fyrir líkamsárás og hótun, fyrir að hafa veist að flugfreyju með því að sparka í hægri sköflung hennar og með því að hóta henni lífláti en slík hótun var til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf sitt og velferð, segir í ákæru.

Hins vegar er maðurinn ákærður fyrir brot gegn lögum um loftferðir „með því að hafa ítrekað farið gegn fyrirmælum flugverja um góða hegðun og reglu en ákærði var ógnandi við flugverja, hrópaði að þeim og öðrum farþegum og réðst með orðum og ofbeldi á flugverja, sbr. ákæruliður I.“

Ákærði er Íslendingur um sextugt og býr erlendis. Hann er vel menntaður og gegnir virðulegu starfi. Hann var ekki viðstaddur réttarhöldin en gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað. Hann gaf skýrslu á ensku og notast var við aðstoð túlks í dómsal. 

Sagði 200 kg farþega hafa ráðist á sig

Saksóknari bað hann um að lýsa því stuttlega hvað gerðist í fluginu. Hann sagðist hafa átt í öndunarerfiðleikum, læknisfræðilegt neyðartilvik, en hann var veikur af Covid og reyndi að aflýsa fluginu. Vegna ástands síns varð hann mjög æstur og ringlaður. Á einhverjum tímapunkti ýtti hann á þjónustubjöllur eftir flugfreyjum. Þá segir hann hafa komið mjög stórgerður maður hlaupandi eftir ganginum og hann hafi handjárnað sig. Hann segist hafa orðið þarna fyrir árás og hafi verið mjög ringlaður. Handjárnin hafi stungist inn í úlnliðinn. Hann segist hafa beðið flugfreyjuna um að losa um handjárnin en hún hafi neitað að gera það. Hann segist hafa verið mjög þjáður og eftir lendingu var hann fluttur á sjúkrahús með hjartavandamál. Hjartslátturinn var 155 slög á mínútu, tveimur klukkustundum eftir atvikin um borð í flugvélinu. Hann var einnig með mjög háan blóðþrýsting og einkenni súrefnisskorts til heila. 

„Þetta var læknisfræðilegt neyðartilvik“, sagði hann. 

Segist hafa drukkið fjögur vínglös

Saksóknari spurði hann út í áfengisneyslu hans fyrir og í fluginu. Hann segist ekki hafa neytt áfengis fyrir flugið en sagðist hafa drukkið fjögur vínglös á þriggja til fjögurra klukkustunda tímabili. 

Hann segir að atvikin hafi orðið mjög seint í fluginu, líklega 4-5 tímum eftir flugtak. Spurður út í ölvunarástand sitt um borð sagði hann það hafa verið 2 á kvarðanum 1 til 4. 

Spurður út samskipti sín við flugfreyjur í fluginu sagði hann þau hafa verið eðlileg, takmörkuð samtöl, en hann sagðist ekki muna þetta vel þar sem nær þrjú ár voru liðin. 

Hann segist ekki hafa haft skýra minningu um atburðina rétt á eftir en kona hans hafi rifjað upp ýmislegt fyrir honum. En hann hafi verið æstur og þjáður en frásögn konu hans hafi rifjað upp fyrir honum hvað hafi gengið á. Hann hafi hringt bjöllunum í gríð og erg og maður hafi ráðist á hann. 

Spurður út í framkomu sína í fluginu sagðist hann hafa orðið enn æstari eftir að maðurinn réðst á hann og handjárnaði hann. „Hann lá ofan á mér, á bakinu á mér, og þessi maður er 200 kíló.“ Hann lýsti meintum harkalegum aðförum farþegans sem hafi valdið honum miklum þjáningum og gert hann enn æstari. 

Hann hafi tekið um buxnastreng hans. „Ég hélt hann ætlaði að nauðga mér.“  Hann segir manninn hafa snúið upp á þumalfingur hans fyrir aftan bak og segir að hann hafi haldið að hann hefði fingurbrotið sig. Enn þann dag í dag geti hann ekki lengur opnað krukku með þeirri hendi. 

„Ég er 61 árs, ég er ekki í góðu formi. Þegar þetta gerðist þá hélt ég að hann hefði hálsbrotið mig.“

Áverkar á hálsi

Hann lýsti yfirbugun sinni um borð sem ofbeldisverki. Segir hann læknisskoðun hafa sýnt fram á áverka á hálsi hans. Hann segist hafa verið ringlaður og æstur en hafa orðið enn æstari eftir að það var ráðist á hann. 

Hann viðurkennir að hafa öskrað og var spurður hvort hann hafi gert eitthvað fleira sem viðbragð við fjötruninni. Hann segist eflaust hafa brotist um en hann hafi verið fjötraður um sætið og óttaðist að maðurinn væri að fara að nauðga sér. Hann neitar ásökunum um að hafa sparkað í neinn, en hann er ákærður fyrir að hafa sparkað í flugfreyju. 

„Nei, ég sparkaði ekki í neinn.“ – Hann sagði að ásakanir um slíkt hafi komið fram fjórum mánuðum síðar, enginn hafi talað um spark eftir flugið. 

Hann sagðist hafa beðið flugfreyjuna margsinnis um að losa handjárnin á honum en hún hafi neitað því. 

Aðspurður um hvernig hann var bundinn við sætið þá segir hann að hendur hans hafi verið handjárnaðar fyrir framan hann. Hann minnist þess ekki að fætur hans hafi verið fjötraðir en segir þó að þeir gætu hafa verið bundnir saman. 

Spurður um hegðuna sína eftir að hann hafi verið bundinn við sætið. „Ég var mjög æstur, hver verður ekki æstur ef ráðist er á mann í flugi, ég var auk þess lemstraður.“ – Hann viðurkennir að hafa hreytt úr sér fúkyrðum sem hann geri annars aldrei. Hann segist hins vegar ekki hafa brotist um í sætinu né hafa brotið sætið, en saksóknari spurði um það. Hann segir sætið hafa brotnað undan þunga farþeganum sem lá ofan á honum og fjötraði hann. „Ég er 105 kíló, hann er 200 kíló.“

Hann neitaði því einnig staðfastlega að hafa hótað flugfreyjunni, hvað þá hótað henni lífláti. „Ég myndi aldrei hóta neinum lífláti.“

Hann segir atburðina hafa haft mjög slæm áhrif á heilsu sína og lýsti slæmu heilsufari. „Ég er fórnarlambið hér, ég er sá sem var ráðist á.“