Maður sem yfirbugaði og fjötraði farþega um borð í flugi Icelandair frá Baltimore til Keflavíkur 27. desember árið 2023 bar vitni í réttarhöldum yfir farþeganum í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Ákærði neitar sök og segist vera hið eiginlega fórnarlamb í málinu. Segir hann umræddan mann hafa beitt sig ofbeldi og hann hafi óttast að hann væri að fara nauðga sér miðað við aðfarir hans, en ákærði var lagður niður í gólfið á magann og settur í handjárn. Er þetta var borið undir vitnið varð hann agndofa af undrun. Aðspurður hvort hann hefði haft í frammi einhverja kynferðislega tilburði í átökunum þá sagði hann: „Við erum í flugvél, það eru börn um borð, ef hann er að segja þetta þá er hann sjúkur maður.“
Hinn ákærði er um sextugt, Íslendingur sem býr erlendis, og bar hann vitni á ensku í gegnum fjarfundabúnað.
Sjá einnig: Meintur flugdólgur segir farþega hafa ráðist á sig – „Ég hélt hann ætlaði að nauðga mér“
Hann er ákærður fyrir líkamsárás og hótun gagnvart flugfreyju um borð, sem er eiginkona mannsins sem yfirbugaði hann. Einnig er hann ákærður fyrir brot gegn lögum um loftferðir með því að hafa ítrekað óhlýðnast fyrirmælum flugverja en hann er sagður hafa verið ógnandi við þá, hrópað að þeim og öðrum farþegum og ráðist með orðum og ofbeldi gegn öðrum farþegum.
Hann lýsti atvikum er hann var yfirbugaður, handjárnaður og bundin ofan í flugsæti sitt, sem árás og ofbeldi gegn sér.
Maðurinn sem yfirbugaði hann hafði allt aðra sögu að segja: Hann segir manninn hafa slegið til fyrstu flugfreyju en eiginkona ákærða hafi lagt hönd fyrir höggið svo það lenti á henni. Hann greinir frá því að um hafi verið að ræða svokallað jólaflug þar sem áhöfnin er ytra yfir jólin, ættingjar koma með og halda jólin saman á áfangastaðnum. Eftir að hafa átt yndislegar stundir hafi tekið við erfiður tími um borð í fluginu er ákærði fór að láta þar öllum illum látum og viðhafði ógnandi framkomu. Hann segir ákærða hafa ráðist á sig í kjölfar þess að eiginkonu hans var boðið að færa sig í annað flugsæti á meðan reynt væri að róa eiginmann hennar niður.
„Konunni hans leið ofboðslega illa, skammaðist sín fyrir hann, ég bara fann til með henni. Það kom upp sú hugmynd að ég myndi skipta um sæti við konuna og hún virtist til í að færa sig. Þá brjálast þessi maður, hann verður alveg svakalega reiður, reisir upp hnefana og tekur tilhlaup að mér. Ég hugsaði með mér, ég trúi þessu ekki, ég næ að taka hann niður þannig við leggjumst niður í ganginn.“
Hann lýsti því að maðurinn hefði verið svo trylltur að hann hefði átt á fullu fangi með að ráða niðurlögum hans. „Hann var bara vitstola“.
Ákærði hafði lýst vitninu sem 200 kg manni og að mikill munur hefði verið á líkamsburðum þeirra og atgervi. Vitnið sagðist vera 188 cm á hæð og hafi á þessum tíma verið um 115 kg. Eiginkona hans, brotaþoli í málinu, taldi líkamsburði þeirra sambærilega en nánar verðurr vikið að framburði hennar hér á eftir.
„Hann var mjög orðljótur. Kallaði mig alls konar nöfnum: „You fucking faggot, you wanna fuck me in the ass“. Segir hann að munnsöfnuður mannsins hafi verið með ólíkindum.“
Hann segir að ömurlegt hafi verið að upplifa þetta, fólk hafi verið mjög óttaslegið og börn hafi orðið vitni að framkomu farþegans.
„Þetta er ónotalegt. Við erum á Íslandi og hingað til hefur þetta verið í lagi. Svo stendur maður frammi fyrir því að þurfa að standa í svona í flugi. Ömurlegt að þurfa að standa í þessu, ég er bara orðlaus,“ sagði maðurinn ennfremur.
Ákærði hefur stefnt honum í skaðabótamáli
Vitnið lýsti því jafnframt fyrir dómi að ákærði hefði höfðað skaðabótamál á hendur honum vegna atviksins. „Til að bíta höfuðið af skömminni,“ segir hann og segir þessa framgöngu vera með miklum ólíkindum.
Brotaþoli bar vitni
Flugfreyjan sem sakborningur er ákærður fyrir að hafa sparkað í og hótað lífláti bar vitni í málinu. Hún segir að eftir 2-3 tíma flug af 5 tímum hafi farþegi verið orðinn órólegur og flugfreyjur voru beðnar um að huga að honum. Hún segir eiginmann sinn hafa verið um borð og flugfreyja hafi beðið hann um aðstoð. Hann segir ákærða hafa slegið til mannsins síns sem hafi snúið hann niður. Annar farþegi hafi aðstoðað við að yfirbuga farþegann sem hafi legið á grúfu á gólfinu og handjárn hafi verið sett á hann. Eðlilega hafi þetta verið óþægileg staða fyrir hann og hafi hún því tekið handjárnin af honum og sett þau á hann í þægilegri stöðu.
„Hann var bara brjálaður,“ segir hún og segir ákærða hafi látið mjög tryllingslega. Hún segist vita að hann hafi verið mjög drukkinn því hann hafi drukkið stíft í fluginu.
„Hann lætur öllum illum látum. Ef maður er handjárnaður í flugi þá er maður bara kyrr og heldur kjafti, afsakið orðbragðið.“ – Hún segir að ákærða hafi verið gefið súrefni um borð eftir þörfum en hann kvartaði undan öndunarerfiðleikum.
Hún segist hafa staðið yfir manninum í kjölfar þessa því hann hafði látið mjög illa og fólk í kringum hans var orðið mjög skelkað.
Hún sagði ákærða hafa talað ensku allan tímann og orðbragð hans hafi verið mjög ósmekklegt, hann hafi t.d. sagt: „Are you going to rape me in the ass!֧“
Hafi brotið sæti og hótað lífláti
Hún segir að eftir að maðurinn hafi verið festur í sætið hafi hann látið svo tryllingslega að sætið hafi brotnað undan honum og farþegi fyrir aftan hann hefði fengið sætisbakið í fangið.
Hann hafi hins vegar skyndilega róast og verið mjög yfirvegaður þegar hann hótaði henni lífláti. Hann hafi horft rólega í augu hennar og sagt að hann ætlaði að komast að því hver hún væri, fletta henni upp, koma heim til hennar og drepa hana.“
Hún lýsti því hvernig ákærði hefði sparkað í hana. Það gerðist á meðan maðurinn lá á maganum í gólfinu og verið var að koma á hann handjárnum. Hann hafi þá sparkað aftur fyrir sig í hana og hún hlotið mar af.
Segir hann hafa tryllst yfir að fá ekki meira áfengi
Flugfreyjan segir að greinilegt hafi verið á ákærða að hann var búinn að neyta áfengis áður en hann kom um borð í vélina. Hann hafi síðan drukkið mikið um borð. „Þegar okkur finnst fólk vera búið að drekka of mikið erum við lengi að afgreiða fólk og látum tímann líða en hann bað endalaust um áfengi og þáði ekki vatn. Þar var hann byrnaður að verða æstur og var mjög orðljótur. Hann hlýddi engu sem við báðum hann um, ekki setjast niður, ekki þegja, ekki að hætta þessum látum.“
Hún segir mikinn ótta hafa gripið um sig um borð í vélinni:
„Það var spenna í loftinu. Ég hef aldrei upplifað svona áður. Hvað ef við hefðum ekki handjárnað hann? Hann var ekki að fara að róa sig og setjast niður. Hann var órólegur og ruddalegur og það voru enn eftir tveir tímar af fluginu.“
Hún segist hafa verið með mar lengi á sköflungnum eftir spark mannsins en þó ekki séð ástæðu til að leita til læknis vegna þess. Hún hafi hins vegar leitað til sálfræðings til að takast á við þessa reynslu.
Þó að atvikið hafi setið lengi í henni hafi hún jafnað sig á því og í raun hafi það styrkt hana.
Flugstjórinn segir öryggisstig 2 hafa verið virkjað
Flugstjóri vélarinnar bar einnig vitni. Hann sagði að um fjögurleytið um nóttina hafi hann fengið þær upplýsingar frá yfirflugfreyju að farþegi væri orðljótur og væri með ógnandi tilburði við eiginkonu sína og áhöfnina. Hann hefði verið að drekka mikið áfengi og verið neitað um meira. Hann hefði slegið til áhafnarmeðlims en kona hans gengið í milli og fengið á sig höggið sem hafi lent í hönd hennar.
Segist hann hafa beint til tilmælum til áhafnarinnar að reyna að „lempa þetta ástand“ en jafnframt var veitt leyfir til valdbeitingar. Hann hafi síðan fengið þær upplýsingar að búið sé að fara í valdbeitingu gegn farþeganum og „óla hann niður í sæti“. Segir hann að þetta hafi verið flokkað sem öryggstig 2, sem táknar að farþegi sé „physically abusive“, þ.e. beiti líkamlegu ofbeldi. „Við tilkynntum félaginu að þessi atburður hefði átt sér stað og þetta var tilkynnt til lögreglu.“
Hann segir síðan að um kl. 5:30 hafi mikill hávaði borist inn í flugstjórnarklefann en þá hafi farþeginn náð að þrýsta sér í sætið þannig að það gaf eftir. Leit út fyrir að hann hefði brotið sætið.
Á Keflavíkurflugvelli kom síðan lögregla um borð og leiddi farþegan frá borði áður en aðrir farþegar fóru út úr vélinni.
Hann segir að skýrsla hafi verið gefin lögreglu en áhöfnin hafi síðan tekið fund um málið. Fólk hafi verið í sjokki eftir þennan atburð og ekki sé auðvelt að taka þátt í slíkum atburði. Síðan hafi annar fundur verið tekinn um málið í húsakynnum Icelandair og niðurstaðan var almenn ánægja með hver vel hefði tekist til að bregðast við ástandinu og takast á við erfiðar aðstæður. Þjálfun sem starfsfólk hafi fengið hafi virkað vel þarna.