Þórarinn Leifsson teiknari, rithöfundur og leiðsögumaður greinir frá því í færslu á Facebook að hann hafi lent í töluverðum vandræðum með hóp ferðamanna í dag. Í hópnum voru bæði einstaklingar frá Ísrael og Palestínu sem hnakkrifust. Í færslunni óskaði Þórarinn eftir ráðleggingum um til hvaða ráða hann ætti að grípa til að stilla til friðar og sagði að honum og ferðamönnum í hópnum, sem væru ekki af þessum uppruna, væri hætt að lítast á blikuna.
DV tókst ekki að ná sambandi við Þórarinn til að spyrja hann nánar út í málið en hann segir í Facebook-færslunni að hann hafi farið með hópinn í Gullna hringinn, síðdegis í dag:
„Ég er með Ísraela og Palestínumenn í rútunni ... Tvenn hjón með nokkur stálpuð börn hvert, samtals níu manns eða hálf rúta í dagtúr. Þau eru búin að rífast síðan í morgun og pabbarnir aðeins farnir að gefa í núna, eitt barnið farið að beygja af sýndist mér. Svo það sé sagt strax þá efast ég um að nokkuð af þessu fólki hafi gegnt herþjónustu eða sé á nokkurn hátt tengt IDF ( ísraelski herinn, innsk. DV) eða Hamas en það er auðvitað bara mín tilfinning sem ég byggi aðallega á því að þau eru öll búsett í Bandaríkjunum.“
Hvað á að gera?
Miðað við lýsingar Þórarins virðist ástandið ekki hafa verið komið á alvarlegt stig en ljóst virðist að hann hafi metið það svo að þetta gæti ekki gengið svona lengur:
„Þetta er aðalega hvimleitt og þessum átta í hópnum sem eru ekki frá mið-austurlöndum hætt að standa á sama. Það versta við þetta er síðan að sami hópur er að fara í norðurljós á eftir (Að vísu með öðrum gæd).“
Óskar Þórarinn að lokum eftir ráðleggingum um hvernig best sé fyrir hann að bregðast við:
„Hvað á maður að gera í svona aðstæðum? Ég gæti auðvitað hótað lögreglu enn það er enginn beinlínis að ógna öryggi. Á ég að tala við ferðaskrifstofuna og reyna að láta þau aflýsa norðurljósatúrnum.“
Í athugasemdum eru Þórarni veitt ýmis ráð. Eitt þeirra felur í sér hvatningu til að lesa yfir Ísraelunum í hópnum en Þórarinn leggur áherslu á að þegar hann sé að störfum sem leiðsögumaður geti hann ekki tekið afstöðu í pólitískum deilumálum og verði að gæta hlutleysis gagnvart sínum viðskiptavinum, þótt hann kunni að vera mjög ósammála þeim.
Nokkrir ráðleggja Þórarni að ræða við Ísraelana og Palestínumennina og benda þeim á að deilur þeirra hafi neikvæð áhrif á aðra í hópnum. Enn aðrir hvetja hann til að hafa samband við viðkomandi ferðaskrifstofu og greinir Þórarinn frá því í athugasemd að ferðaskrifstofan hafi leyst málið þannig að hópnum verði skipt upp svo að Ísraelarnir og Palestínumennirnir verði ekki lengur í samfloti.
Það má því segja að málefni Mið-austurlanda taki á sig ýmsar myndir og komi víða við sögu meira að segja við helstu náttúruperlur Íslands.