Fréttir

Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar

Mynd

Jón Gnarr er hættur í þingflokki Viðreisnar. Þetta hefur Vísir eftir heimildum sínum. 

Úrsögn Jóns hefur ekki úrslitaáhrif á meirihluta ríkisstjórnarinnar á þingi. Til að mynda meirihluta þarf 32 þingmenn, með brotthvarfi Jóns verða þeir 35.  

Fyrr á þessu kjörtímabili sagði Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður og fyrrverandi ráðherra sig úr Flokki fólksins en tók fram að hann styddi ríkisstjórnina áfram.

Jón hefur setið á þingi fyrir Viðreisn frá árinu 2024, hann var borgarstjóri Reykjavíkur á árinum 2010 til 2014. 

Jón mun gera betur grein fyrir ákvörðun sinni síðar í dag og í Kastljósi í kvöld.