Fréttir

Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“

Mynd

Jón Gnarr mætti í Reykjavík síðdegis rétt í þessu þar sem hann greindi nánar frá ákvörðun sinni um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann segir að ákvörðunin hafi verið þungbær og átt sér nokkurn aðdraganda. Hann er áfram flokksbundinn Viðreisn, enda telur hann flokkinn best henta sínum skoðunum, en finnur ekki lengur samleið með þingflokknum.

„En mér finnst ég ekki eiga samleið með þingflokknum. Það hafa svolítið skilið leiðir þar og það er ýmislegt sem kemur til. Þetta er búið að eiga sér mjög langan aðdraganda, mörg löng símtöl, samtöl og fundi og það hefur leitt mig að þessari niðurstöðu að þetta sé minn eini kostur. Síðustu dagar eru bara búnir að vera svolítið bara eins og Borgen-þáttur. Ég bara, ég gæti ekki einu sinni horft á þá núna.“

Hefði viljað meiri stuðning

Þáttastjórnendur gengu á þingmanninn og sögðu að eitthvað tiltekið mál hlyti að hafa gert útslagið. Jón segist hafa komið inn í þingflokkinn með ákveðin markmið. Einkum vildi hann hafa jákvæð áhrif á stöðu barna í alvarlegum vanda. Mikið hafi vissulega áunnist í þeim málum og margt gott verið gert en hann hefur ekki upplifað stuðning frá öðrum í þingflokknum til að gera meira gagn til góðs í þeim málaflokki. Nefnir hann þá sérstaklega Háholt í Skagafirði sem hann vildi að ríkið tæki yfir en það gekk ekki eftir.

Hann minnist þess að nú séu tvö ár liðin frá brunanum á Stuðlum og nú sé héraðssaksóknari með það á borðinu hjá sér að gefa út ákæru fyrir manndráp af gáleysi, en þar eru tólf með réttarstöðu sakbornings. Jón segir Viðreisn sem flokk ekki komna af réttri braut en þingflokkurinn sé það kannski að einhverju leyti. Nefnir hann í því samhengi einstaklingsfrelsið sem hann metur mikils. Jón lagði í nafni einstaklingsfrelsis fram frumvarp um breytingu á lögum um mannanöfn sem hann hefði viljað sjá meiri framgang.

Aðspurður hvort Jón upplifi að honum hafi verið ýtt til hliðar og haldið niðri innan Viðreisnar segist Jón að tilfinningin hafi stundum verið þannig.

„Mér finnst líka bara, þú veist, ég er ekki bara einhver jólasveinn sko, ég er þungavigtarmaður. Ég er þekktur maður og ég hef ákveðnar skoðanir.“

Engin gremja

Aðstæður og örlög hafi hagað hlutum óheppilega. Ríkisstjórnarsamstarf í lýðræðisríki krefst málamiðlana en almennir þingmenn eru kannski ekki alltaf upplýstir almennilega um hverjar málamiðlanirnar eru. Hann vill frekar tala um brest á trausti en trúnaðarbrest.

„Ég geri þetta ekki í neinni gremju eða einhverri pólitískri óvild út í einhverja ákveðna einstaklinga. Mér finnst bara svona kannski maskínan mætti vanda sig betur.“

Hann segist stoltur af störfum ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega hrósar hann Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra sem hafi vaxið gríðarlega í starfi. Hann hafi um tíma mátað sig við Samfylkinguna en séð að hann á ekki samleið með þeim flokki. Viðreisn er áfram hans flokkur og mun hann sitja utan þingflokks og hefur engan hug á því að ganga í annan flokk.

Heilt yfir hefur Jóni liðið vel sem þingmaður og telur það forréttindi að fá að gegna starfinu og hafa raunveruleg áhrif. Hann hafi rætt við sína nánustu um að hann gæti hugsað sér að halda þessu áfram þegar kjörtímabilið er liðið. Hann veit þó ekki með hvaða hætti það verður.

Áfallasaga

Jón tók fram í þættinum og eins í samtali við Vísi að það sé ákveðin áfallasaga í Viðreisn þar sem hafi komið upp mjög erfið mál. Fólk takist misjafnlega á við áföll. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi verið áfall og eins hafi komið upp flókin og erfið persónuleg mál og veikindi. Það hafi allt sitt að segja. Sjálfur segist Jón ekki hafa haft eldheitar skoðanir á þjóðaratkvæðagreiðslunni, en telur þó að betur hefði mátt standa að henni og að eftir að niðurstaðan varð ljós hefði flokkurinn þurft að skilgreina sig og stíga fram með skýrum hætti. 

„Þetta var náttúrulega fyrir margt fólk sem er að starfa í þessum flokki mjög mikið áfall, mikill pólitískur ósigur. Ég er ekki að reiðast fólki sem er í áfalli yfir einhverju af því það er ekki að performera af því það er í áfalli, ég er ekki þannig maður en ég get heldur ekki setið í einhverju sem mér finnst ekki vera samkvæmt minni sannfæringu, ég bara get það ekki.“