Jón Gnarr hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar og mun sitja áfram sem þingmaður utan þingflokks. Frá þessu var greint við upphaf þingfundar í dag þar sem forseti Alþingis las upp eftirfarandi bréf frá Jóni:
„Með bréfi þessu tilkynni ég hér með að ég hef í dag sagt mig úr þingflokki Viðreisnar. Ég mun starfa á Alþingi sem þingmaður utan þingflokks í ófyrirséðan tíma. Ég mun áfram styðja ríkisstjórnina í hennar mikilvæga starfi til sjávar og sveita.“
Jón steig svo sjálfur í pontu þar sem hann sagði:
„Virðulegi forseti, kæru þingmenn, ég hef reynt í lífinu að standa fyrir máli mínu og horfa framan í fólk og þakka fyrir það tækifæri að fá að gera það hér. Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg og hún var ekki tekin nema eftir langa og vandlega umhugsun. Eins og stjórnarskráin skyldar mig til að gera þá fylgi ég sannfæringu minni hér, takk fyrir.“
Að því loknu gekk Jón í hliðarsal Alþingis þar sem hann faðmaði starfsmenn Viðreisnar og aðstoðarmenn ráðherra. Eins faðmaði hann Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmann Viðreisnar, og Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Hann settist svo við vegginn þar sem hann spjallaði við Heimi Má Pétursson, framkvæmdastjóra Flokks fólksins.
Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að þetta væri skellur fyrir flokkinn en Viðreisn hefur gert samstarfssamning við Jón sem mun áfram styðja mál ríkisstjórnarinnar. Hann mun eins áfram sitja í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og í Þingvallanefnd og því verður ekki um breytingar á nefndarsetu að ræða. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hefur greint frá því að Jón hafi ekki sagt sig úr flokknum, bara þingflokknum. Hann er áfram í Viðreisn.
Jón boðar það í færslu á Facebook að hann muni gera betur grein fyrir ákvörðun sinni klukkan 16:00 í Reykjavík síðdegis og í Kastljósi í kvöld.