Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á rúmlega hálft kíló af kókaíni eftir að hafa stöðvað bifreið í hefðbundnu umferðareftirliti þann 1. október síðastliðinn. Fíkniefnin fundust meðal annars í Bónuspoka undir farþegasæti bifreiðarinnar og Ajax-brúsa í farangursgeymslunni.
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar frá því á þriðjudag þar sem staðfest var áframhaldandi gæsluvarðhald yfir öðrum tveggja manna sem handteknir voru í tengslum við málið.
Eftirlýstur vegna brottvísunar
Upphaf málsins má rekja til þess að lögreglumenn stöðvuðu bifreiðina til að kanna ástand ökumanns og ökuréttindi hans. Tveir menn voru í bílnum og þegar lögregla fletti farþeganum upp í kerfum sínum kom í ljós að hann var eftirlýstur fyrir Útlendingastofnun.
Átti að birta honum ákvörðun um brottvísun frá Íslandi og endurkomubann.
Mennirnir voru í kjölfarið fluttir á lögreglustöð ásamt bifreiðinni. Við öryggisleit á farþeganum fundust 38 töflur, sem grunur lék á að væru OxyContin, í smelluláspoka sem hann hafði falið innanklæða. Maðurinn sagðist nota lyfin sjálfur.
Fíkniefni í Ajax-brúsa
Ökumaður bifreiðarinnar veitti lögreglu heimild til að leita í bílnum. Undir farþegasætinu fannst þá Bónuspoki sem innihélt tíu lofttæmdar pakkningar með ætluðum fíkniefnum.
Í farangursgeymslunni fannst síðan Ajax-brúsi með 45 sambærilegum pakkningum.
Efnagreining leiddi í ljós að pakkningarnar innihéldu samtals 535,61 gramm af kókaíni.
Mennirnir voru báðir handteknir og er málið enn til rannsóknar. Lögregla kannar meðal annars ferðir þeirra til og frá landinu, möguleg tengsl við samverkamenn hérlendis og erlendis og hvort málið tengist öðrum sambærilegum fíkniefnamálum.
Lögreglan telur magnið benda eindregið til þess að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar, annaðhvort á Íslandi eða annars staðar í Evrópu.
Farþeginn hefur neitað sök. Landsréttur staðfesti að hann skyldi sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi og einangrun til klukkan 16 í dag, fimmtudaginn 15. október.