Fréttir

Hart tekist á um erfðafjárskattinn – Rósa vill hann burt og segir ríkið skattleggja syrgjandi fjölskyldur

Mynd
Rósa og Guðmundur Ari voru ekki á sama máli í umræðunum í gær.

Hart var tekist á um erfðafjárskatt á Alþingi í gær þegar Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir frumvarpi um afnám skattsins. Markmið frumvarpsins er að afnema skattinn með öllu og að Ísland skipi sér þar með í hóp með öðrum vestrænum ríkjum, svo sem Noregi og Svíþjóð.

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi tillöguna harðlega og sagði hana fela í sér milljarða skattalækkun sem kæmi fyrst og fremst þeim efnamestu til góða. Þá liggi ekki fyrir nein útfærsla frá Sjálfstæðisflokknum um hvað eigi að gera í staðinn.

Rósa svaraði fyrir sig og sakaði ríkisstjórnina um „blygðunarlausa skattsýki“ og að láta „græðgi ríkisins“ bitna á venjulegum fjölskyldum.

Segir ríkið skattleggja ævistarf fólks í tvígang

Rósa sagði erfðafjárskatt í grunninn óréttláta tvísköttun þar sem skattar hefðu þegar verið greiddir af þeim verðmætum sem fólk léti eftir sig.

„Á ríkið að mæta syrgjandi fjölskyldum á dánarbeði með útreiknaða skattkröfu í hendi?“ spurði hún og svaraði sjálf neitandi.

Hún sagði skattinn geta komið sérstaklega illa niður á litlum og meðalstórum fjölskyldufyrirtækjum þar sem eignir væru bundnar í fasteignum, tækjum og öðrum rekstrarfjármunum. Erfingjar gætu því þurft að taka lán eða selja eignir til að standa skil á skattinum.

„Þessi skattur bitnar því verst og mest á venjulegum fjölskyldum, venjulegu fólki,“ sagði Rósa.

Hún benti jafnframt á að Svíþjóð og Noregur hefðu afnumið erfðafjárskatt og hvatti íslenska þingmenn til að fara sömu leið. Í Svíþjóð hefði ríkisstjórn jafnaðarmanna afnumið skattinn og séð að hann væri að valda tjóni.

Segir tillöguna kosta ríkissjóð 14 milljarða

Guðmundur Ari tók ekki undir þessi sjónarmið Rósu í andsvari sínu. Hann sagði tillöguna sýna að Sjálfstæðisflokkurinn hygðist halda áfram sömu efnahagsstefnu og áður.

„Hér fáum við áhugaverða innsýn í áframhaldandi efnahagsstefnu Sjálfstæðismanna sem ráku ríkissjóð með hundraða milljarða halla, 115 milljarða meðalhalla á hverju ári,“ sagði hann.

Guðmundur Ari sagði að nú þegar stefndi í fyrstu hallalausu fjárlögin í nærri áratug legði Sjálfstæðisflokkurinn fram óútfærða skattalækkun upp á 14 milljarða króna án þess að skýra hvernig bæta ætti ríkissjóði tekjutapið.

Hann sagði skattalækkunina nýtast mest þeim sem ættu mest og minnti á að ríkið þyrfti að standa undir heilbrigðisþjónustu, löggæslu og menntakerfi.

„Þegar þú stýrir ríki eða sveitarfélagi er ekki nóg að byggja bara á hugmyndafræðilegum markmiðum. Þú þarft að tryggja að þú eigir fyrir þeirri þjónustu sem þú ert að veita.“

Þá spurði hann hvort von væri á fleiri óútfærðum loforðum Sjálfstæðisflokksins sem nýttust ríkasta fólki landsins.

„Blygðunarlaus skattsýki“

Rósa brást hart við gagnrýninni og vísaði meðal annars til efnahagstillagna Sjálfstæðisflokksins sem hún sagði nema 160 milljörðum króna.

„Þetta er ekkert annað en skattsýki þessarar ríkisstjórnar og hún er blygðunarlaus,“ sagði hún og hafnaði því að afnám erfðafjárskatts myndi fyrst og fremst gagnast auðugasta fólkinu

„Það er blygðunarlaus skattsýki að taka svona illa í hugmyndir sem venjulegt fólk, venjulegar fjölskyldur og venjuleg lítil og meðalstór fjölskyldufyrirtæki finna mest fyrir.“

Rósa sagði sérstaklega ósanngjarnt að fólk gæti þurft að selja eignir eða skuldsetja sig í kjölfar andláts foreldra sinna til þess eins að greiða skattinn.

„Og það að setja fólk við andlát foreldris eða foreldra í þannig stöðu að það þurfi jafnvel að taka dýr lán eða selja íbúðir eða lítil eða meðalstór fyrirtæki til þess að eiga fyrir þessum skatti, til að þjóna ríkinu, til að græðgi ríkisins, vil ég segja, sé uppfyllt.“